ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu Hjallaveg 1, birt stærð 81.3 fm. Íbúðin er 3ja herbergja, á þriðju hæð með stórum suður svölum og frábæru útsýni.
Eignin er mikið endurnýjuð, allar innihurðar nýlegar, nýleg vínyl gólfefni, baðherbergi hefur verið endurnýjað og gluggar suður hliðar. Eldhúsinnrétting er eldri en hefur verið hvítlökkuð. Uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur með vatns- og klakavél fylgir. Öllum ofnum er hægt að hitastýra í gegnum síma. Búið er að endurnýja rofa og tengla. Blokkin var sprunguviðgerð og máluð að mestu að utan fyrir tveimur árum. Nýlegt ruslaskýli.
Virkilega falleg íbúð á vinsælum stað í Njarðvíkurskólahverfi. Tilvalin fyrstu kaup. Eignin hefur rúmgóða og bjarta stofu þar sem einnig er gert ráð fyrir borðsstofuborði. Útgengt er út á góðar sólríkar svalir með frábæru útsýni. Á herbergisgangi eru tvö svefnherbergi. Góðir innbyggðir klæðaskápar eru í hjónaherbergi og fataherbergi, þar sem áður var geymsla. Baðherbergi var tekið í gegn fyrir nokkrum árum og inn af baðherbergi er þvottaaðstaða. Eldhúsið er með eldri innréttingu sem hefur verið hvítlökkuð en tæki, vaskur og borðplata hefur verið endurnýjuð. Í eldhúsi er rými fyrir borðkrók. Eignin er nýlega máluð að innan. Í sameign er sér geymsla ásamt vagna og hjólageymslu. Næg bílastæði á lóð og fyrir framan hús.
Nánari upplýsingar veitir: Unnur Svava Sverrisdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8682555, tölvupóstur unnur@allt.is.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Dökkar, nýlegar flýsar og góður hvítur klæðaskápur.
Eldhús: Aflokað, en margir hafa opnað á milli. Vínyl parket á gólfi. Hvít innrétting, Tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél fylgja, Rými er fyrir eldhúsborð.
Stofa: Björt með vínyl parketi og rými fyrir borðstofu. Útgengni út á stórar suður svalir.
Herbergi: Tvö svefnherbergi, innbyggður klæðaskápur í hjónaherbergi. Lítið fataherbergi við hliðina á barnaherbergi.
Baðherbergi og þvottahús: Baðherbergi flísalagt með sturtu baðkari, slerni og innréttingu. Niðurtekin loft með innbyggðri lýsingu. Þvottahús, þvottaaðstaða inn af baðherbergi.
Umhverfi: Vel staðsett eign. Gott útsýni frá íbúð. Leikvöllur og stórt tún á bak við hús. Eign staðsett miðsvæðis í Njarðvík. Stutt í Reykjaneshöll og Njarðvíkurskóla, verslunarkjarna, fjölbrautarskóla og alla helstu þjónustu.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.