
Viltu fasteignir kynna fallega og vandaða 2ja herbergja íbúð á 4. hæð í nýlegu lyftuhúsi við Árskóga 1B. Eign fyrir 60 ára og eldri.
Á sölusíðu eignarinnar er hægt að nálgast söluyfirlit ásamt öðrum sölugögnum fyrir eignina
Íbúðin skiptist í svefnherbergi, alrými, baðherbergi, þvottahús og forstofu. Svalir með svalalokun. Sérgeymsla í kjallara. Gólfhiti, parket og vandaðar innréttingar frá Axis. Eignin er laus við kaupsamning og hægt að skoða með stuttum fyrirvara.
Eignin er skráð samkvæmt eignaskiptasamningi 78,7 m2, þar af íbúð 71,9 m2 og geymsla 6,8 m2.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp.
Eldhús með fallegri innréttingu frá Axis, steinn á borðum og stílhrein innrétting, vönduð heimilistæki frá AEG og Samsung.
Stofa/borðstofa og eldhúsið eru í opnu rými með útgengi á rúmgóðar svalir með svalalokun.
Hjónaherbergi með stórum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt, falleg innrétting og flísalögð sturta með glerskilrúmi, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús með hvítri innréttingu og skolvaski. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir út frá stofu. Rúmgóðar með svalalokun og snúa til suðvesturs
Geymsla er í sameign
Húsið er nýlegt, byggt 2019. Örstutt er í félagsmiðstöðina Árskóga þar sem er skipulagt félagsstarf á vegum Reykjavíkurborgar og hægt er að fá keyptan mat og síðdegiskaffi virka daga. Stutt er í helstu þjónustu í Mjóddinni, s.s. heilsugæslu, apótek, verslanir og fl. Fjöldi bílastæða er á lóð, ásamt hleðslustæðum fyrir íbúa.
Góð eign á frábærum stað, miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu.
Kvöð er á eigninni um að kaupendur skulu vera 60 ára eða eldri og félagar í Félagi eldri borgara í Reykjavík - núverandi félagsgjald er kr
5.800.
Nánari upplýsingar veitur Heiðrekur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali í 845-9000 eða heidrekur@viltu.is eða Viltu fasteignir í síma 583-5000 / hvad@viltu.is
Viltu fasteignir bjóða fasta söluþóknun 995.000 kr.
Allt innifalið.
Kynntu þér málið á Viltu.is
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 09/05/2019 | 19.850.000 kr. | 36.900.000 kr. | 78.7 m2 | 468.869 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
109 | 94.2 | 77,9 | ||
110 | 89.5 | 74,9 | ||
110 | 86.8 | 73,2 | ||
110 | 86.8 | 73,2 | ||
110 | 89.5 | 74,9 |