Fasteignaval ehf. kynnir parhús í 190, Sveitarfélagið Vogar
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Fasteignasala Kópavogs / Gunnlaugur Hilmarsson kynnir: Fallegt 109,4m2 parhús, þar af 32m2 aukaíbúð sem búið er að innrétta í bílskúr, við Brekkugötu 19, 190 Vogum.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með fataskáp. Stofa er björt og rúmgóð og þaðan er útgengt út á timburverönd. Borðstofa er samliggjandi við stofu og þaðan er útgengt út á timbur pall baka til við húsið. Eldhús er með ágætri ljósri innréttingu. Svefnherbergi er með fataskáp og parket á gólfi. Baðherbergi er flísalagt og með sturtuklefa. Hátt er til lofts í allri íbúðinni og lýsing er góð. Timburverönd snýr í suð-vestur og er með heitum potti. 15m2 timbur skúr með hita, rafmagn, er fyrir framan húsið.
Búið er að innrétta aukaíbúð í bílskúr, með sérinngangi, sem samanstendur af forstofu, herbergi, baðherbergi með sturtu og með aðstöðu fyrri þvottavél, eldhúsi og sjónvarpsrými. Útgengt er út á timburpall baka til við húsið.
Afhending við kaupsamning
Allar upplýsingar veitir Gunnlaugur Hilmarsson, löggildur fasteignasali og viðskiptafræðingur, í síma 777 56 56, gunnlaugur@fastko.is, og á skrifstofu í síma 517 26 00 eða á heimasíðu okkar www.fastko.is
Kostnaður kaupanda:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi –0,8% af heildarfasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl. kr 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, kr. 50.000 auk vsk. sbr. Kauptilboði.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 17/03/2015 | 16.650.000 kr. | 16.285.000 kr. | 109.4 m2 | 148.857 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
230 | 65,2 | 52,9 | ||
190 | 92,2 | 62 | ||
221 | 81 | 68,9 | ||
221 | 81,4 | 68,9 | ||
221 | 58,9 | 58 | ||
221 | 58,4 | 58,9 |