Skráð 12. jan. 2026

Valshlíð 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
75.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
1.054.090 kr./m2
Fasteignamat
72.450.000 kr.
IF
Irpa Fönn Hlynsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Garður
Fasteignanúmer
2532647
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Nei
Byggingarstig
B3 - Fullgerð bygging að utan og tilbúin til innréttingar
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Procura kynnir fjölbýlishús í 102, Reykjavíkurborg

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.

Íbúð 309 - Verð 79,9M

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 309.
Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.

Íbúðir afhendast fullbúnar haust 2025.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR

Hagkvæm og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í Hlíðarhorni. Íbúðin snýr inn í innri garð. Birt stærð er 75,8 fm þar af 5,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu.
Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1.

Nánari lýsing:
Í anddyri
eru góðir fataskápar. Gengið er beint inn í rúmgott alrými; eldhús með eyju og stofa/borðstofa með gólfsíðum gluggum og útgengi á rúmgóðar austur svalir. Hvít eldhúsinnrétting, hvítur/gráyrjóttur quartz-steinn á borðum og krómuð blöndunartæki. Rúmgott hjónaherbergi með góðu fataherbergi. Baðherbergi er mjög rúmgott með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur með lýsingu. Krómuð blöndunartæki. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0036. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis:
www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Smyrilshlíð 15
102 Reykjavík
89.1 m2
Fjölbýlishús
211
930 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 18
Smyrilshlíð 18
102 Reykjavík
69.9 m2
Fjölbýlishús
211
1143 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Arnarhlíð 1
Opið hús:20. jan. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Arnarhlíð 1
Arnarhlíð 1
102 Reykjavík
81.1 m2
Fjölbýlishús
312
1022 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 2
Bílastæði
Skoða eignina Smyrilshlíð 2
Smyrilshlíð 2
102 Reykjavík
90.5 m2
Fjölbýlishús
312
905 þ.kr./m2
81.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin