Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Tekjumöguleikar. Í einkasölu bjarta og góða þriggja herbergja íbúð á efstu hæð við Brekkustíg í hjarta Vesturbæjar, ásamt
fullbúinni stúdíóíbúð á jarðhæð, skráðri sem bílskúr. Heildarstærð eignarinnar samkvæmt Þjóðskrá er 102 fermetrar, þar af er stúdíóíbúðin skráð 19,1 fermetrar. Hér er einstakur fjárfestingarkostur á fjölskylduvænum stað með mjög góðum útleigumöguleika.
Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar: Baldur fasteignasali - baldur@fastgardur.is - Beinn sími: 450-0000Nánari lýsing:Anddyri: Parket á gólfi og pláss fyrir fatahengi.
Eldhús: Eldhús og stofa mynda opið rými. Snyrtileg eldhúsinnrétting með marmaraborðplötu, innbyggð uppþvottavél og pláss fyrir stóran ísskáp. Gott pláss fyrir borðstofuborð og stór gluggi sem gefur góða birtu.
Stofa/borðstofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi. Útgengt er á skjólgóðar suður svalir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og opinn fataskápur.
Svefnherbergi: Parket á gólfi og fataskápur
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Innrétting við vaskm, vegghengt klósett, baðkar með sturtu og gleri, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Geymsla og sameign: Í kjallara er sérgeymsla 9,7 fm og sameiginlegt þvottahús sem aðeins er deilt með einni annarri íbúð.
Stúdíóíbúð: Íbúðin er
19,10 fermetrar, góðir tekjumöguleikar.
Einstaklega björt og vel skipulögð stúdíóíbúð sem hefur verið endurnýjuð.
Dagrými: Opið rými með gluggum.
Eldhúskrókur: Eldhúsinnrétting og pláss fyrir þvottavél í innréttingu.
Baðherbergi: Flísar á gólfi, sturtuklefi, lítil innrétting og gluggi til loftunar.
Sér stæði á lóð fyrir framan stúdíóið fylgir eigninni.Aðrar upplýsingar:
Húsið hefur fengið gott viðhald, m.a.
sprunguviðgerðir og utanhúsmálun ca. 2018.
Þak endurbætt samkvæmt eldri fasteignaauglýsingum.
Einstaklega góð staðsetning í gamla Vesturbænum. Róleg gata, stutt í HÍ, miðbæinn, verslanir á Granda, Vesturbæjarlaug gönguleið og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldur fasteignasali - baldur@fastgardur.is / beinn sími: 450-0000Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Lúxus fasteignir á Íslandi - Greiðslumat.is - Hvað getur þú keypt