Fasteignaleitin
Opið hús:01. nóv. kl 13:00-13:30
Skráð 27. okt. 2026

Austurhólar 6

FjölbýlishúsSuðurland/Selfoss-800
94.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
61.900.000 kr.
Fermetraverð
654.334 kr./m2
Brunabótamat
57.200.000 kr.
Byggt 2023
3. hæð
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
25215941
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Aldir fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:

Fallega nýlega fjögurra herbergja 94,6 fm íbúð á 3. hæð með sérinngangi af svalagangi við Austurhóla 6 á Selfossi. Íbúðin er með þremur svefnherbergjum og geymslu innan íbúðar. Eldhús og stofa eru í opnu og björtu alrými og þaðan er útgengi á svalir sem snúa í vestur. Um er að ræða vandað, klætt fjölbýlishús með lyftu, byggt árið 2023.

Birt stærð íbúðar er 94,6 fm skv. HMS, auk 14,3 m² svala.
Eignin skiptist í anddyri, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, geymslu, eldhús og stofu í alrými og svalir.

✅ Falleg og nýleg fjögurra herbergja íbúð á 3. hæð
✅ Sérinngangur af svalagangi og lyfta í húsinu
✅ Þrjú rúmgóð svefnherbergi og geymsla innan íbúðar
✅ Svalir í vestur út frá stofu með pallagólfi
✅ Næg bílastæði á lóð með hleðslustöðvum fyrir rafbíla
✅ Spennandi staðsetning í ört vaxandi fjölskylduhverfi

Nánari lýsing
Anddyri: Harðparket á gólfi og dökkir fataskápar.
Eldhús: Innrétting frá HTH með dökkum efri skápum, hvítum neðri skápum, dökkri borðplötu og lýsingu undir efri skápum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél, bakarofn og helluborð með gufugleypi yfir. Harðparket á gólfi.
Stofa: Í opnu alrými með eldhúsi. Harðparket á gólfi og útgengi á svalir.
Svalir: 14,3 m² svalir til vesturs með timburgólfi og glerhandriði.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi með harðparketi á gólfum. Hvítir fataskápar í hjónaherbergi og hvítur skápur í hvoru hinna herbergjanna.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, walk-in sturtu með gleskilrúmi, dökkri baðinnréttingu með hvítri borðplötu, upplýstum spegli, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og handklæðaofni.
Geymsla: Innan íbúðar, harðparket á gólfi.
Sameign: Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.
Lóð og bílastæði: Lóðin er 3.589,9 m² í óskiptri sameign. Á lóðinni eru 50 sameiginleg bílastæði, þar af 3 fyrir hreyfihamlaða.

Staðsetning
Íbúðin er í nýju og ört vaxandi hverfi sem er að byggjast upp í austurhluta Selfoss. Leikskóli og skóli eru í grenndinni ásamt íþróttasvæði Selfoss.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Víkurmói 2, íbúð 0201
Hleðslustöð
Víkurmói 2, íbúð 0201
800 Selfoss
98,9 m2
Fjölbýlishús
413
656 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Víkurmói 2, íbúð 0201
Hleðslustöð
Víkurmói 2, íbúð 0201
800 Selfoss
98,9 m2
Fjölbýlishús
413
656 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
Bílskúr
Á einni hæð
Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
815 Þorlákshöfn
113,5 m2
Raðhús
312
568 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
Selvogsbraut 13A með bílskúr LAUST
815 Þorlákshöfn
113,5 m2
Raðhús
312
568 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin