Kasa fasteignir 461-2010.
Holtateigur 24. Fallegt 4 herbergja 140,6 fm parhús á einni hæð með bílskúr á vinsælum stað á Brekkunni.
Íbúðin skiptist í: Forstofu, stofu og eldhús í opnu rými, 2 svefnherbergi, sjónvarpshol, baðherbergi, þvottahús, tvær geymslur og bílskúr með rúmgóðu millilofti.
Forstofa: Þar eru flísar á gólfum og fataskápur.
Stofa: Rúmgott og bjart rými með parketi á gólfum, gengið er út á góðan sólpall sem snýr til vesturs úr stofu. Gott pláss er fyrir borðstofuborð í opna rýminu milli eldhúss og stofu.
Eldhús: Góð innrétting með efri og neðri skápum. Pláss fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Einning er eyja en þar eru skúffur og skápar ásamt gaseldavél. Bakaraofn í vinnuhæð. Borðplötur eru úr Corian. Parket er á gólfum í eldhúsi.
Baðherbergi: Þar eru flísar á gólfum, ljós innrétting, upphengt salerni og sturtuklefi.
Svefnherbergi: Eru tvö, parket á gólfum, stór skápur í hjónaherbergi og minni skápur er í öðru barnaherberginu.
Sjónvarpshol: Er inn af stofu, þar er parket á gólfum. Lítið mál er að gera þriðja svefnherbergið þar.
Þvottahús: þar eru flísar á gólfum.
Geymsla. Er á móti þvottahúsi, þar er opnanlegur gluggi, flísar á gólfum.
Lokuð geymsla/búr er einnig inn af bílskúr þar eru hillur á veggjum og einnig er gluggi þar.
Bílskúr: Er flísalagður, þar er hurð með rafmagnsopnun, útgönguhurð er út í garð til austurs úr bílskúr. Búið er að útbúa gott geymsluloft yfir öllum bílskúr.
- Góð timbur verönd er vestan megin við húsið með heitum potti og geymslu skúr.
- Snjóbræðsla er í hluta af bílaplani.
- Skriðkjallari er undir húsinu.
- Ísskápur og uppþvottavél fylgja með við sölu.
- Gas kútar fyrir eldavél eru geymdir í lokaðri hirslu á sólpalli.
- Frábær staðsetning, stutt í framhaldsskóla bæjarins.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.