SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *STÓRGLÆSILEGT EINBÝLISHÚS Á BESTA STAÐ Á ENDALÓÐ Í VILLAMARTIN* *SÉR SUNDLAUG, STÓR GARÐUR, ÞAKSVALIR* *NÓG PLÁSS FYRIR STÓRFJÖLSKYLDUNA* *STÆÐI Á LÓÐ* *HÚSGÖGN FYLGJA*Á aðalhæð er rúmgott eldhús opið við stofu og borðstofu. Góð innrétting og útgengi út í garð frá eldhúsi. Stofan er björt með mikilli lofthæð og golfsíðum gluggum. Á hæðinni er svefnherbergi með góðu skápaplássi, ásamt baðherbergi með sturtu og glugga. Hægt er að ganga út á lóð frá eldhúsi, borðstofu, stofu og svefnherbergi. Á efri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi með góðu skápaplássi. Frá efri hæð er gengið upp á stórar þaksvalir með frábæru útsýni.
Eigninni fylgir einnig innréttaður kjallari, en þar er eldhúskrókur, stofa og svefnherbergi í góðu alrými. Þar er einnig baðherbergi með sturtu.
Lóðin er stór og hægt að eyða gæðastundum með fjölskyldunni, nóg pláss fyrir alla til að njóta öllu sem Spánn hefur upp á að bjóða.
Allar upplýsingar gefur Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. Sími 0034 615 112 869. berta@spanareignir.is Öll helsta þjónusta er í göngufæri, verslanir, veitingastaðir og fleira. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni t.d. La Finca, Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Vistabella og Lo Romero. Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina og vinsælu verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard. Frábær eign á góðum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.
Verð 595.000 evrur (86.275.000 ISK) + kostn. gengi 1Evra=145 ISK
Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.13%.
Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, loftkæling, golf, þakverönd, útsýni,
Svæði: Costa Blanca, Villamartin, El Galan, Las Filippinas,