Miklaborg kynnir til leigu: Til leigu 200 fm einstakt atvinnuhúsnæði á jarðhæð í Sjávarborg Kirkjusandi. Staðsetning er frábær, rétt við Borgartún og stutt frá miðbænum. Glæsilegt anddyri bæði í kjallara og 1 hæð. · Hönnun og útlit á heimsmælikvarða · Mjög stór samtengdur bílakjallari undir öllu hverfinu með hátt í 1.000 bílastæði · Heilsugæsla fyrir 105-108 hverfin á 2 hæðinni og stórt apótek á jarðhæð
Húsnæðið miðast við tilbúið til innréttinga en hægt er að innrétta fyrir leigjanda skv.samkomulagi og getur verið tilbúið til notkunar innan 4-6 mánaða frá undirritun leigusamnings.Hverfið tengist Borgartúni frá Sundlaugavegi, aðrar tengingar eru frá Sæbraut og Laugarnesi. Þá eru góðir göngu og hjólastígar við hverfið í allar áttir ásamt því að ný borgarlína sé áformuð með stoppistöð við það.
Ýmsir möguleikar eru á skiptingu rýmisins í opin vinnurými, lokaðar skrifstofur/ fundarherbergi. Inngangur í kjallara hjá bílastæðum er bjartur og stór og virkar eins og aðalinngangur. Í kjallara hússins eru hjólreiðageymslur og búningsaðstaða með sturtum. Úr bílageymslu í kjallara ganga svo tvær lyftur. Mikið er af bílastæðum í kjallara sem er
samfelldur undir öllu hverfinu.
Allar nánari upplýsingar gefur Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða svan@miklaborg.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
105 | 92,4 | 76,9 | ||
105 | 84,6 | 49,9 | ||
110 | 232 | Tilboð | ||
105 | 125,2 | 129,9 | ||
105 | 81,5 | 79,5 | ||
105 | 108,1 | 106,9 |