KAUPSTAÐUR fasteignasala kynnir í einkasölu SJÁVARGRUND 13A, Garðabæ.
Fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi og stæði í bílageymslu.
Stutt í skóla, leikskóla, almenna þjónustu, útivist og ýmisskonar afþreyingu. Smellið hér fyrir staðsetningu.
Birt stærð eignar er 135.5 m² þar af íbúð 115 m² og bílgeymsla 20.5 m² samkvæmt fasteignayfirliti HMS.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR OG TILBOÐSGERÐ Á SÖLUSÍÐU EIGNARINNAR.
Skipulag íbúðar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú herbergi og baðherbergi, þvottahús/geymsla og hol
Í sameign: Stæði í bílageymslu, hjóla- og vagnageymsla.
NÁNARI LÝSING:
Anddyri: tvöfaldur fataskápur, flísar á gólfi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, parket á gólfi.
Eldhús, innrétting, keramik helluborð og ofn, vifta, gert r áð fyrir uppþvottavél í innréttingu.
Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur, parket á gólfi, útgengt út í bakgarð.
Herbergi II, parket á gólfi. Herbergi III (var áður eldhús) einfaldur fataskápur, hillur, útgengt út í bakgarð.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting, sturtuklefi og baðkar, salerni, vifta.
Hol er á neðri hæð, parket á gólfi, inn af því er þvottahús, innangengt er frá holi í bílakjallara. Þvottahús/geymsla, hillur, pláss fyrir tvær vélar, vinnuborð með stálvask, vifta,
Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði í bílakjallara, innangengt úr/í íbúð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöð er að stæði (ekki dregið í).
Nánar um húsið.
SJÁVARGRUND 1-15 er steinsteypt íbúðarhús, kjallari, tvær hæðir og ris, 32 íbúðir eru í húsinu. Bílakjallari er undir húsinu. Í bílakjallara eru þrjár hjólageymslur og þrjár dekkjageymslur sem er skipt á milli íbúðanna. Lóð er sameiginleg gróin/frágengin, sérnotaflötur fylgir íbúðinni að framanverðu og aftanverðu við húsið. Timburverönd með skjólveggjum er framan við húsið og hellulögð stétt með skjólveggjum aftan við húsið, sameiginlegur innri garður, sorpgeymsla er framan við húsið.
Lóð er 8.141m² leigulóð í eigu Garðabæjar, lóðarleigusamningur til 75 ára frá 25. maí 1993, skjal nr. 436-B-002196/1993.
Samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu Sjávargrund 1-15, 210 Garðabær, skjal nr. 436-A-003267/1998.
Eign 0114. Eignin er íbúð á jarðhæð, auk annarra eftiralinna rýma og hlutdeildar í sameign. Íbúð þessari fylgir verönd sem er í séreign og sérafnot af forgarði, hvorutveggja er eins og sýnt er á afstöðumynd. Íbúð nr. 13A, íbúð á neðri hæð. Birt stærð séreignar er: 0114, íbúð: 93.7 m². 0052, geymsla: 21.3 m². 0050, bílageymsla: 20.5 m². Hlutfallstölur eru 1. í matshluta 1: 2,43%. 2. í lóð: 2,43% og í sameiginlegum hitakostnaði: 2,40 %.
Íbúðir á 1. hæð hafa sérnafnota af forgörðum framan við sína íbúð sem fram kemur og á afstöðumynd. Kostnaður vegna umhirðu lóðar skiptast jafnt á íbúðir að undanskildum kostnaði við sérnotafleti. Kostnað af þeim griða þeir sem hafa sérnotin, bæði framkvæmdakostnað og umhirðu.
Sameiginlegur hita- og rafmangskostnaður og kostanður við rekstur sameignar: Einn hitamælir er fyrir allt húsið, en sérrafmagnsmælir er fyrir hvrja sérign og sér rafmagnsmælir fyrir sameign. Skipting hitakostnaðar, bæði í séreignum og sameign svo og skipting rafmagnskostnaðar í sameign skal veru samkvæmt prósentu.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Nánari upplýsingar í síma 454-0000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Svarað er í síma milli kl. 09:00-16:00.
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 12/08/2014 | 25.450.000 kr. | 34.900.000 kr. | 135.5 m2 | 257.564 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 146,4 | 104,9 | ||
110 | 140 | 92,5 | ||
109 | 114,2 | 66,9 | ||
109 | 119,3 | 90,9 | ||
113 | 110,8 | 85,9 | ||
107 | 125,5 | 104,9 |