Fasteignamiðstöðin er með til sölu eignina Dagverðarnessel Dalabyggð, 371 Búðardalur. Fastanúmer 211-7604, landnúmer 137751 Jörðin er talin vera um 250 hektarar að stærð þar af ræktað land samkvæmt Þjóðskrá 15000 m2. Jörðin liggur á lágu nesi sem skagar út til suð-vesturs frá Fellsströnd. Enginn uppistandandi húsakostur er á jörðinni en jörðin hefur verið í eyði í mörg ár. Landamerkjalýsing frá 1884 er sem hér segir: Að austanverðu ræður efri lækurinn, sem rennur úr Stuttugötuflóa út í Kvennahólsvog, hjá honum er hogginn kross og hlaðin varða, svo er varða hlaðin úr hnaus í miðjum flóanum með viðarkoli í, svo er grjótvarða vestanvert á Stilluholti og þaðan sjónhending í Ormsstaðavatnsós, svo ræður Ormsstaðavatn. Að sunnanverðu ræður sjónhending úr útsuðurhorni Ormsstaðavatns í Saurpoll, þaðan bein lína ofan með Hraunfjöllum og yfir þvera mýri milli Steinsholts og Vörðuáss ofan að fyrrnefndum Vörðuás. Að vestanverðu ræður bein lína úr Vörðuás í miðja Krossása, þaðan í lónið milli Stóruborgar og Litluborgar. Lónið ræður þaðan í Kvennhólsvog með Saltnesi og Saltneshólmum. Að norðanverðu ræður Kvennahólsvogur að fyrrnefndum lækjarósi. Mikil náttúrufegurð og friðsæld er á þessu svæði sem óhætt er að segja að liggi rétt utan alfaraleiðar. Fremur stutt er t.d. í Búðardal og á ýmsa sögustaði tengda Íslendingasögunum. Talið er að Auður Djúpúðga hafi snætt dögurð á Dagverðarnesi er hún fór þar um með fylgdarliði sínu i leit að öndvegissúlum sínum. Fyrir ströndinni blasa við eyjaklasar á Breiðafirði með margbrotnu fuglalífi og eru þar aðalheimkynni hafarnarins. Á jörðinni var töluverð dúntekja á meðan hún var stunduð. Áhugaverð jörð í ósnortinni náttúru og fögru umhverfi.Staðsettning á korti
https://landeignaskra.hms.is/?v_mode=aaetlun&v_land=137751&v_sf=10107803&v_lsk=0-0Tilvísunarnúmer: 10-1339
Nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamiðstöðvarinnar, Hlíðarsmára 17 201 Kópavogi - sími: 550 3000
tölvupóstfang: fasteignamidstodin@fasteignamidstodin.is / leiga@fasteignamidstodin.is
Sjá einnig: fasteignamidstodin.is / jardir.is / fasteignir.is / mbl.is/fasteignir
Eftir lokun skiptiborðs:
Magnús Leópoldsson lögg. fasteignasali sími: 550 3000 og 892 6000 - tölvupóstfang magnus@fasteignamidstodin.is
Guðrún Olsen síma 550 3000 - tölvupóstfang gudrun@fasteignamidstodin.is
María Magnúsdóttir lögfræðingur gsm: 899 5600 - tölvupóstfang maria@fasteignamidstodin.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,0 - 1,8% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár,
til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta
fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.