Fasteignaleitin
Skráð 26. júní 2026

Eyktarhæð 5

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
263.5 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
199.000.000 kr.
Fermetraverð
755.218 kr./m2
Brunabótamat
154.150.000 kr.
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20698641
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali  s. 777-2882 kynna einstaklega bjart  og fallegt einbýlishús vel staðsett í Hæðahverfinu í Garðabæ.
Eyktarhæð 5 er skráð 263,5 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðarhlutinn skráður 228,8 fm og bílskúr 34,7.
Húsið er teiknað af Hauki Viktorssyni arkitekt og fullklárað 1996, það er fjölskylduvænt, stendur hátt og  innst í botnlagna með útsýni yfir Akrahverfið og yfir Arnarnesvoginn og í átt að Snæfellsjökli, lóðin er afar gróðursæl og skjólsælt er umhverfis húsið.
Húsið er pallaskipt þannig að það er að hluta til á tveimur hæðum og millihæð sem skapa gott flæði en á sama tíma geta svefnherbergi verið afsíðis.
Eignin skiptist í 5 herbergi, eldhús, borðstofu, setustofu og sjónvarpsstofu, tvö baðherbergi og gestasnyrtingu.
Komið er inn í flísalagða forstofu. Næst henni er annarsvegar eitt herbergi með fataskápum, hentugt fyrir ungling eða sem skrifstofa. Gestsanyrting með salerni og handlaug er inn af forstofunni.
Opið og glæsilegt hol er með mikilli lofthæð og ofanljósum (þakgluggum) sem tryggja birtu inn í önnur rými og tengir saman stofur, eldhús og svefnhbergisálmu.
Eldhúsið er hálf opið með ágætri innréttingu, eyju og skemmtilegu vinnurými sem hentar vel fyrir veislur og mannmargar fjölskyldur.
Borðstofan er næst eldhúsi með gluggum mót vestri og hurð út á pall sem umkringdur er fallegum gróðri, útskot mót s-vestri og fallegri gluggasetningu býður upp á ýmsa nýtingu og tengingu við pallinn. Mjög gott útsýni er frá húsinu, m.a. útsýni yfir Snæfellsjökul frá borðstofu. Setustofa er tveimur þrepur neðar en borðstofan, þar njóta sín gluggar nánast frá gólfi upp í loft og tengja saman úti og innisvæði á fallegan máta ásamt veglegum arni, eftir Jóni Eldon, prýddum íslensku stórgrýti. Sjónvarsstofan afar er notalegt rými fyrir samverustundir.
Á svefnherbergisgangi, nokkrum þrepum ofar, eru 2 svefnherberg og rúmgott baðherbergi. Í dag er annað herbergjanna nýtt sem fataherbergi, hjónaherbergi er með fataskáp og gluggum með aðgengi út á suðurvalir.
Baðherbergið er rúmgott, flísalagt í hólf og gólf með niðurfelldu baðkari,  sturtuklefa og innréttingu með handlaug.
Frá sjónvarsstofunni er  gengið niður hálfa hæð á neðri hæðina sem einnig er með sérinngang utan frá. Neðri hæðinni sem teiknuð er sem stór geymsla, þvottahús og bílskúr var nýlega breytt þannig að þar eru nú 2 stór herbergi sem henta vel fyrir unglinga eða mögulega til útleigu. Þvottahús er hannað með baðaðstöðu með sturtu. Einfalt er að loka neðri hæðinni af að hluta og fá þannig auka íbúð með sér inngangi.
Gólf eru flest með ítölskum flísum sem eru mjúkar undir fót, önnur gólfefni er viðarparket.  Allar hurðir eru hvítar, veglegar og sérmíðaðar fulningahurðir.
Húsið er bjart  með  stórum gluggum og ofanljós sem tryggja birtuflæði inn í öll rými.
Góð aðkoma er að húsinu með hellulagðri innkeyrslu með hitalögn undir.  
Garðurinn er einfaldur, að hluta til með villtum svæðu og hluta stærri trjám út við götuna, hannaður þannig að auðvelt sé að hugsa um hann. Húsið og lóðin umhverfis það snúa þannig að njóta má sólar frá morgni til kvölds.
 Þetta er einstaklega vel staðsett eign, innst í botnlanga-götu, nærri verslun, þjónustu og öllum skólastigum. Þá er stutt í samgönguleiðir.
Allar frekari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignsali í s. 777-2882 eða thora@esjafasteignasala.is
 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarlundur 6
Bílskúr
Skoða eignina Skógarlundur 6
Skógarlundur 6
210 Garðabær
215.7 m2
Einbýlishús
614
857 þ.kr./m2
184.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 120
Bílastæði
Skoða eignina Hringbraut 120
Hringbraut 120
101 Reykjavík
154.7 m2
Fjölbýlishús
423
1324 þ.kr./m2
204.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Bílskúr
Skoða eignina Hlíðarvegur 42
Hlíðarvegur 42
625 Ólafsfjörður
248.2 m2
Einbýlishús
625
274 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Faxatún 42
Bílskúr
Skoða eignina Faxatún 42
Faxatún 42
210 Garðabær
168.1 m2
Einbýlishús
413
Fasteignamat 125.950.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin