Fasteignaleitin
Skráð 11. des. 2025

Grýtubakki 22

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
70.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
53.900.000 kr.
Fermetraverð
762.376 kr./m2
Fasteignamat
49.650.000 kr.
Brunabótamat
36.310.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Geymsla 8.8m2
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2047749
Landnúmer
111855
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegar / óvitað
Raflagnir
upprunalegar / óvitað
Frárennslislagnir
upprunalegar
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler / endurnýjaðir
Þak
Upprunalegt / óvitað / lagfærður þakkantur 2019 - sjá skoðunarblað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
austur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Fyrirhugaðar framkvæmdir á vegum húsfélags :
Á aðalfundi 2025 var rætt um ýmsar framkvæmdir. meðal annars var stjórn veitt heimild til að gera ástandsskýrslu á þaki og ástandsmeta pípulagnir. Einnig var rætt um að afsla kostnaðaráætlun í malbiksviðgerðir í samvinnu við G2-16. Þá var rætt um aðrar minniháttar framkvæmdir sem stjórn hefur heimild til að sinna; ljós í undirgögnum og við innganga og stétt frá bílastæðum. Að lokum var rætt um ýmist viðhald sem snýr að stigagangsfélögum, meðal annars málun sameignar, póstkassar, dyrasímar, sjá nánar fundargerð 15.02.25.
Úttektir :
Hjá Ingvarsson haust 2024 - skoðun á þaki, þakrými og stigahúsum.
APH ráðgjöf, ástandsskoðun vegna rakaskemmda október 2025.
Á aðalfundi 2025 var rætt um glugga frá Selju. Fram kom að ábyrgð ág luggum renni út sumarið 2025. Í ljósi þess var stjórn veitt heimild til að ráðfæra sig við lögmann og upplýsa eigendur um næstu skref. Sjá nánar í fundargerð 15.02.25
Kvöð / kvaðir
ath. er skráð 2ja hrb samkv. HMS. Ekki hefur verið gert breyting á upprunalegri teikningu, en þá var eldhús í minna svefnherbergi en var svo fært fram síðar, fasteignasali hefur ekki upplýsingar um hvort tilskylin byggingaleyfi hafi verið sótt hjá reykjavíkurborg við breytinguna ( var fært fram fyrir tíð okkar seljanda ) og hvetur kaupanda til að kynna sér málið vel eða óska eftir upplýsingum hvað það varðar. Athugast innbyggð uppþvottavél fylgir ekki.
Hugguleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í Grýtubakka 22, Reykjavík

* Frábær fyrstu kaup - möguleiki á 90% lánveitingu
* Fallegt útsýni
* Húsið hefur fengið mikið viðhald 
* Endurnýjað eldhús og parket 2025
* Laus strax


Viðhald hússins sl. ár er meðal annars :
Nýlegar framkvæmdir á eign skv. seljanda 
2019 voru gluggar endurnýjaðir.
2020 var húsið málað að utan.

Nánari upplýsingar veita:
Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. Fasteignaskrá Íslands er 70,70 m2

Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi, svalir og sérgeymslu. 
Forstofa er með fataskáp.
Eldhús er með nýlegri innréttingu með bakarofn í vinnuhæð, helluborði, og tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa / borðstofa er rúmgóð og opin með eldhúsi, útgengt á svalir til austurs. 
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtu, salerni, innrétting með handlaug. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.
Sérgeymsla er í sameign skráð 8,8 m2.
Í sameign er einnig hjóla-vagnageymsla.

Um er að ræða mikið endurnýjaða fjölskyldueign á vinsælum stað í bökkunum í neðra Breiðholti. Öll þjónusta, skólar, leikskólar og afþreying í göngufæri. Einnig er stutt í Elliðarárdalinn þar sem eru fallegar gönguleiðir og útivistarsvæði.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/10/202443.800.000 kr.48.500.000 kr.70.7 m2685.997 kr.
09/04/200814.050.000 kr.14.500.000 kr.70.7 m2205.091 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1968
8.8 m2
Fasteignanúmer
2047749
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
3.960.000 kr.

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Þórufell 8
Skoða eignina Þórufell 8
Þórufell 8
111 Reykjavík
56.8 m2
Fjölbýlishús
211
861 þ.kr./m2
48.900.000 kr.
Skoða eignina Strandgata 26 íb. 304
Strandgata 26 íb. 304
220 Hafnarfjörður
74.3 m2
Fjölbýlishús
211
1170 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 406
Suðurhella 16 íb. 406
221 Hafnarfjörður
122.6 m2
Fjölbýlishús
413
648 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Suðurhella 16 íb. 204
Suðurhella 16 íb. 204
221 Hafnarfjörður
78.4 m2
Fjölbýlishús
211
764 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin