Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu: Einstaklega glæsilegt og vel við haldið 4ra herbergja raðhús á tveimur hæðum við
ÁSHOLT 22, 105 Reykjavík. Um er að ræða bjarta og rúmgóða fjölskyldueign á
eignarlóð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og stórum suðvestursvölum. Eigninni fylgja
tvö bílastæði í bílageymslu. Sameign er snyrtileg og vel við haldið, með lokuðum sameiginlegum garði og leikaðstöðu. Frábær staðsetning í grónu og vaxandi hverfi þar sem stutt er í miðborg Reykjavíkur, verslanir og alla helstu þjónustu.
Eignin er skráð alls 140,8 fm. samkvæmt HMS. , byggt árið 1990.
Nánari lýsing:
Smelltu hér til að sækja söluyfirlitNeðri hæð:
Forstofa: Skápur, fatahengi og gestasnyrting - flísar á gólfi.
Gestasnyrting: Inn af forstofu er snyrtileg gestasnyrting með flísum á gólfi og veggjum.
Hol: Tengir saman helstu rými neðri hæðar. Þaðan liggur fallegur stigi með stálhandriði og harðviðarþrepum upp á efri hæð - gegnheilt beykiparket á gólfi.
Stofa / borðstofa: Bjart og rúmgott alrými þar sem stofa og borðstofa mynda samfellda heild - gegnheilt beykiparket á gólfi. Útgent á stórar suðvestursvalir.
Svalir: Rúmgóðar svalir sem snúa til suðvesturs með útgengi frá stofu - stærð 16,4 fm.
Eldhús: Vel útbúið eldhús með innréttingu í viðaráferð, gegnheilli viðarborðplötu og vönduðum heimilistækjum. Eldhúsið tengist björtum borðkrók í
sólstofu - flísar á gólfum eldhúss og sólstofu.
Efri hæð:
Hol: Stigi frá neðri hæð liggur upp í hol sem tengir saman herbergi og baðherbergi hæðarinnar - teppalagt gólf.
Hjónaherbergi: Rúmgott og notalegt hjónaherbergi, með stórum fataskáp með speglahurðum, innbyggðum náttlömpum og rými fyrir skrifborð, hægindastól eða sófa - teppalagt gólf.
Herbergi 2: Rúmgott herbergi með innbyggðum fataskápum sem ná yfir heilan vegg og geymsluhillum - korkflísar á gólfi.
Herbergi 3: Rúmgott herbergi með fataskáp með speglahurðum, hillum og útsýni yfir sameiginlegan inngarð - korkflísar á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með baðkari, ljósri innréttingu, tenging fyrir þvottavél og opnanlegum glugga.
Geymslur og sameign:
Sérgeymsla: Eigninni fylgir
8,2 fm. sérgeymsla í sameign í kjallara.
Bílageymsla:
Tvö bílastæði í sameiginlegri bílageymslu fylgja eigninni. Þar er einnig
bílaþvottaaðstaða.
Þvottahús: Í kjallara er sameiginlegt þvottahús með þvottavélum til afnota fyrir íbúa.
Lóð og sameign: Húsið stendur á
sameiginlegri eignarlóð. Sameiginlegur garður er lokaður og þar er leikaðstaða fyrir börn. Sameiginlegum rýmum er vel við haldið og húsvarðarþjónusta er til staðar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala, s.
779-5463 /
anton@trausti.isKristján Baldursson, hdl. og löggiltur fasteignasali, s.
867-3040 /
kristjan@trausti.isBóka verðmatwww.trausti.isTrausti á Facebook