Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir í einkasölu vandað og fallegt sex herbergja einbýlishús við Glitvelli 27 á einni hæð með stórri timburverönd, heitum potti og skjólveggjum.
Gólfhiti, gegnheilt parket, hjónasvíta, tvö baðherbergi, sér sjónvarpsstofa, stórt þvottahús, vandaðar innréttingar, granít borðplötur. Mikil lofthæð, gegnheilir viðargluggar,
Húsið er byggt úr timbri á steyptri plötu, klætt að utan með hallandi bárujárni og er skráð 237.5 fm þar af bílskúr 41.2 fm.
Sjá hér myndband af eigninni
Eignin skiptist eftirfarandi.
Forstofa, stofa, fjögur svefnherbergi, hjónaherbergi með sturtu, salernis aðstöðu og rúmgóðu fataherbergi, sjónvarpsherbergi, baðherbergi, rúmgott þvottahús og rúmgóður bílskúr með breiðri bílskúrshurð. Geymsluskúr við bifreiðastæði.
Lýsing eignar:Forstofa: Flísalögð forstofa með miklu skápaplássi.
Eldhús: Stórt og bjart eldhús með sprautulakkaðri innréttingu, granít borðplötu og stórri eyju. Tveir bökunarofnar í vinnuhæð. Útgengt úr eldhúsi á skjólgóða timburverönd með heitum potti.
Stofa: Rúmgóð og björt parketlögð stofa með mikilli lofthæð.
Borðstofa: Rúmgóð og björt parketlögð borðstofa með mikilli lofthæð.
Sjónvarpsstofa: Aflokuð sér sjónvarpsstofa.
Hjónasvíta: Rúmgóð parketlögð hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi.
Svefnherbergi 2: Parketlagt rúmgott svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 3: Parketlagt rúmgott svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 4: Parketlagt rúmgott svefnherbergi með skápum.
Þvottahús: Stórt flísalagt þvottahús með innréttingu og skolvask, gluggi á þvottahúsi.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi með vandaðri innréttingu, sturtu með glerskilrúmi og tveimur handlaugum.
Bílskúr: 42 fm bílskúr með stórri hurð og epoxy á gólfi.
Bílaplan: Stórt hellulagt bílaplan með hitalögn og þakskyggni yfir sem skýlir vel framhlíð hússins yfir bílastæðin.. Geymsluskúr við enda bílaplans.
Nánari upplýsingar veitir Atli S Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is