Domus Fasteignasala kynnir í einkasölu Melabraut 15 á Blönduósi.
Smelltu hér til að skoða kynningarmyndband um eigninaUm er að ræða 181,6 fm steypt einbýlishús frá árinu 1971. Íbúð er 121,8 fm og bílskúr er 59,8 fm. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, stofa, eldhús, búr, baðherbergi og forstofa.
Nánari lýsing: Forstofa: Er með flísum á gólfi og nýlegri útidyrahurð.
Stofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi.
Eldhús: Er með parketi á gólfi og upprunalegri viðarlitri eldhúsinnréttingu. Búr er inn af eldhúsi.
Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfi og miklu skápaplássi.
Svefnherbergi 1: Er rúmgott með parketi á gólfi. Þetta herbergi var áður tvö herbergi svo að möguleiki væri á að skipta því aftur niður í tvö herbergi og þá eru svefnherbergin orðin fimm talsins.
Svefnherbergi 2: Er með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3: Er með parketi á gólfi. Hentar einnig vel sem skrifstofuherbergi.
Baðherbergi: Er nýlega uppgert með flísum á gólfi og veggjum. Svört innrétting er á baðherberginu og sturta ásamt aðstöðu fyrir þvottavél.
Helstu endurbætur síðustu ára: - Skipt um vatnsinntak árið 2017
- Búið að skipta um þak
- Húsið málað að utan 2020
- Skipt um glugga 2020
- Skipt um hurðar inni í húsi
- Skipt um alla ofna í húsi
- Baðherbergi tekið í gegn 2022
- Nýjar skólplagnir, tvöfalt frárennsli - lítið mál að setja heitan pott
- Neysluvatn endurnýjað í bílskúr
- Búið að skipta um loft og parket í svefnherbergjum, gangi og í stofu
- Nýjar flísar í forstofu og nýleg útidyrahurð
- Nýjir rofar og tenglar
- Ný rafmagnstafla
Eldhús er þó upprunalegt, bílskúr óeinangraður og þarfnast viðhalds.
Um er að ræða gott einbýlishús þar sem stutt er í alla þjónustu og skóli og leikskóli eru í göngufæri.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 stefano@pacta.isForsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.