Fasteignaleitin
Skráð 15. okt. 2026

Járnslétta 2

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Höfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Kjalarnes-162
75.3 m2
1 Herb.
1 Baðherb.
Verð
34.500.000 kr.
Fermetraverð
458.167 kr./m2
Fasteignamat
28.000.000 kr.
Brunabótamat
25.050.000 kr.
Mynd af Baldur Jezorski
Baldur Jezorski
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2026
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2532301
Landnúmer
229471
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Stál
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
09
Vatnslagnir
Nýjar (2026)
Raflagnir
Nýjar (2026)
Frárennslislagnir
Nýjar (2026)
Gluggar / Gler
Nýtt (2026)
Þak
Nýtt (2026)
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Vsk-kvöð hvílir á eigninni, áætluð um 5.761.762 kr. Kaupandi í vsk-skyldri starfsemi yfirtekur kvöðina; kaupandi sem ekki er í vsk-skyldri starfsemi greiðir hana upp við kaupsamning. Upphæð staðfest fyrir kaupsamning.
NÝTT 75 FM ATVINNUHÚSNÆÐI Á ESJUMELUM – 6 METRA LOFTHÆÐ – MILLILOFT Í BOÐI

Bilið hentar vel iðnaðarmönnum og verktökum, bílaverkstæðum og bónstöðvum, heildsölum og netverslunum með lager, ferðaþjónustu eða sem rúmgóð geymsla fyrir húsbíl, hjólhýsi eða bíla.

Baldur fasteignasali – Beinn sími 450-0000 kynnir: Í einkasölu nýtt 75 fermetra iðnaðarbil með innkeyrsluhurð, bil merkt 109 að Járnsléttu 2 á Esjumelum, 162 Reykjavík. Húsið var fullgert 2026 og bilið afhendist tilbúið til notkunar með fullbúnu salerni. Lofthæð er um 6 metrar við útvegg og yfir 8 metrar í mæni, rafdrifin innkeyrsluhurð er 3 x 4,5 metrar og hvert bil hefur sér rafmagnstöflu með þriggja fasa tenglum. Hægt er að fá um 50 fermetra milliloft smíðað fyrir afhendingu, með 3,6 metra lofthæð undir millilofti, gegn viðbótargreiðslu. Olíuskilja er í húsinu og tvö merkt bílastæði fylgja bilinu.
Stærð eignarinnar er 75,30 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Bílastæði og hlutdeild í sameign eru ekki innifalin í skráðri stærð.

Bil 109 - Þetta bil
75,3 fm    / 34.500.000 kr.     án millilofts
125,3 fm  / 38.000.000 kr.    með millilofti

Bil 111 - Með millilofti
125,3 fm  / 38.000.000 kr. 

Bil 120
65,1 fm    / 29.900.000 kr.  án millilofts
115,1 fm  / 33.400.000 kr.  með millilofti

Hægt er að kaupa bil með eða án millilofts. Fermetrar með millilofti er áætlaður heildar gólfflötur, ekki skráðir fermetrar

Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar - eða hringdu í Baldur fasteignasala í síma 450-0000

Aðal sölupunktar:
  • Nýtt og fullgert 2026, matsstig 7
  • Lofthæð um 6 m við útvegg og yfir 8 m í mæni
  • Milliloft í boði: um 50 fermetrar, smíðað fyrir afhendingu, 3,6 m lofthæð undir millilofti. Verð 38,0 m.kr. með millilofti, þá um 125 fermetrar í heild.
  • Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m með glugga, gönguhurð við hliðina
  • Sér rafmagnstafla í bilinu með 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum
  • Fullbúið salerni með handlaug
  • Hitaveita og ofnahiti, niðurfall, þakgluggi sem gefur dagsbirtu
  • Olíuskilja í húsinu - hentar bílaverkstæðum, bónstöðvum og verktökum
  • Tvö merkt bílastæði á malbikuðu plani beint fyrir framan bilið
  • Hurð inn á sameiginlegan þjónustugang hússins - önnur útgönguleið / flóttaleið
  • Stálgrind og einangraðar einingar á veggjum og þaki - viðhaldslítið hús
  • Laust til afhendingar við kaupsamning
  • Vsk-kvöð yfirtekin af kaupanda í vsk-skyldri starfsemi
Bilið skiptist í opið vinnurými með innkeyrsluhurð og salerni með handlaug. Þá fylgja bilinu tvö merkt bílastæði og hlutdeild í sameign hússins, þar á meðal þjónustugangi og tæknirými.

Nánari lýsing:
Vinnurými: Steypt gólf með niðurfalli, hvítar yleiningar á veggjum, lofthæð um 6 m við útvegg og yfir 8 m í mæni. Þakgluggi úr polycarbonati, LED loftlýsing, ofn og sér rafmagnstafla með 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum við innkeyrsluhurð.
Innkeyrsluhurð: Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m með gluggarönd. Gönguhurð við hliðina.
Salerni: Um 3,8 fermetra, salerni og handlaug.
Þjónustugangur: Hurð úr bilinu inn á sameiginlegan gang eftir miðju hússins, með aðgengi að inntaki og aðaltöflu. Inngangur á gang á báðum göflum hússins.

Húsið:
Járnslétta 2 er 22 bila atvinnuhúsnæði byggt 2026. Húsið stendur á staðsteyptri plötu með járnbentum sökklum, burðarvirkið er stálgrind frá Hardeman í Hollandi, og það er klætt einangruðum yleiningum á veggjum og þaki. Bilin liggja í tveimur röðum, bak í bak, með yfirbyggðum þjónustugangi á milli. Olíuskilja er í fráveitukerfi hússins. Lóðin er malbikuð með tveimur merktum bílastæðum við hvert bil.

Staðan í dag:
Húsið er fullgert (matsstig 7 hjá HMS) og bilið afhendist tilbúið til notkunar: steypt gólf, salerni fullbúið, rafmagn tengt með sér töflu, hiti á, innkeyrsluhurð með rafopnun og lóð frágengin. Kaupandi sér sjálfur um innréttingar, kaffistofu eða skrifstofu eftir þörfum og getur fengið milliloft smíðað fyrir afhendingu.

Byggingarlýsing:
Burðarvirki: Staðsteyptir sökklar og botnplata. Stálgrind með krossböndum í þaki og göflum, boltuð á steyptar undirstöður.
Veggir og þak: Einangraðar yleiningar (samlokueiningar með stálplötum og einangrunarkjarna). Mænisþak með þakgluggum úr polycarbonati.
Hiti: Hitaveita, ofnakerfi með sameiginlegri mælagrind fyrir húsið. Ofn í vinnurými.
Lagnir: Kalt og heitt neysluvatn á salerni. Gólfniðurfall í vinnurými. Olíuskilja í fráveitu hússins.
Rafmagn: Sameiginleg aðaltafla í þjónustugangi og sér greinatafla í hverju bili með aðalrofa, lekaliða og 32 A og 16 A þriggja fasa tenglum. Loftlýsing og netbakki.
Hurðir: Rafdrifin innkeyrsluhurð 3 x 4,5 m, gönguhurð út og hurð inn á þjónustugang.

Kjör:
  • Verð 34,5 m.kr. án millilofts. Með um 50 fermetra millilofti smíðuðu fyrir afhendingu er verðið 38,0 m.kr.
  • Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
  • Vsk-kvöð hvílir á eigninni, áætluð um 5.761.762 kr. Kaupandi í vsk-skyldri starfsemi yfirtekur kvöðina. Kaupandi sem ekki er í vsk-skyldri starfsemi greiðir hana upp við kaupsamning.
  • Fasteignamat 2026: 28.000.000 kr. / Fyrirhugað fasteignamat 2027: 29.350.000 kr.
  • Brunabótamat: 25.050.000 kr.
Staðsetning: Esjumelar eru athafnasvæði við Vesturlandsveg, norðan Mosfellsbæjar við rætur Esju, þar sem fjöldi iðnaðar- og þjónustufyrirtækja hefur byggt upp á síðustu árum. Greið leið er á Vesturlandsveg í báðar áttir – í Mosfellsbæ og höfuðborgina annars vegar og á Kjalarnes og Vesturland hins vegar.

Bil 111 við hliðina (með tilbúnu millilofti) og bil 120 (65,10 fm) í sama húsi eru einnig til sölu hjá Baldri.

--- Smelltu hér til að skoða önnur bil ---

Bil 109 - Þetta bil
75,3 fm    / 34.500.000 kr.     án millilofts
125,3 fm  / 38.000.000 kr.    með millilofti

Bil 111 - Með millilofti
125,3 fm  / 38.000.000 kr. 

Bil 120
65,1 fm    / 29.900.000 kr.  án millilofts
115,1 fm  / 33.400.000 kr.  með millilofti

Nánari upplýsingar veitir:
Baldur Jezorski – löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000
Skoða meðmæli - Verðmat fasteigna - Að selja hjá Baldri
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Járnslétta 2
Skoða eignina Járnslétta 2
Járnslétta 2
162 Reykjavík
65,1 m2
Atvinnuhúsn.
11
459 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Völuteigur 17
3.jpeg
Skoða eignina Völuteigur 17
Völuteigur 17
270 Mosfellsbær
922,8 m2
Atvinnuhúsn.
Fasteignamat 499.750.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Járnslétta 2
Skoða eignina Járnslétta 2
Járnslétta 2
162 Reykjavík
125,3 m2
Atvinnuhúsn.
11
303 þ.kr./m2
38.000.000 kr.
Skoða eignina Silfurslétta 5
Skoða eignina Silfurslétta 5
Silfurslétta 5
162 Reykjavík
181,8 m2
Atvinnuhúsn.
11
329 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin