LIND fasteignasala og Guðmundur Hallgrímsson, löggiltur fasteignasali, kynna: Borgarholtsbraut 67.
Glæsileg fjögurra herbergja íbúð í nýlegu tveggja hæða fjórbýli með sérinngangi, staðsett í grónu og fallegu hverfi í vesturbæ Kópavogs. Íbúðin er á jarðhæð og er samtals 103,4 fm skv. HMS, auk þess er 15 fm geymsluskúr á lóð. Íbúðin er með stórri timburverönd sem snýr í suður og er sannkallaður sælureitur. Heitur og kaldur pottur eru á pallinum ásamt útieldhúsi með innbyggðu grilli sem fylgir. Á lóðinni er einnig um 15 fm geymsluskúr með rafmagni og lögnum fyrir vaski og stýringu fyrir heita pottinn. Frábær staðsetning – á bakvið húsið er almenningsgarðurinn Listatún, og við hliðina er Stellu-róluvöllur. Í næsta nágrenni má finna grunnskóla, leikskóla, sundlaug, bakarí og alla helstu þjónustu. Tvö bílastæði fylgja eigninni og búið er að setja upp hleðslustöð. Hiti er í stétt.
Nánari lýsing:Gengið inn í íbúðina frá austurhlið hússins.
Anddyri:Flísalagt með fataskáp og lokað af með rennihurð.
Stofa og eldhús:Opið og bjart rými með gólfsíðum gluggum og rennihurð út á timburverönd sem snýr í suður.
Eldhús:Falleg sérsmíðuð hvít háglans-innrétting frá HTH með innbyggðri uppþvottavél, innbyggðum ísskáp og bakaraofni í vinnsluhæð.
Eyja með spanhelluborði og háf, hægt er að sitja við hana.
Hjónaherbergi:Rúmgott með góðum skápum og harðparketi á gólfum.
Svefnherbergi II:Rúmgott með skápum og parketi.
Svefnherbergi III:Mjög rúmgott með skápum og parketi.
Baðherbergi:Rúmgott með sérsmíðaðri innréttingu og handlaug. Handklæðaofn og upphengt salerni. sturtubotn er flísalagður og sturtuhlið úr hertu gleri. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnsluhæð með skúffum. Flísar á gólfi og veggir að hluta.
Geymsla: Er innan íbúðar og geymsluskúr á lóð.
Verönd:Stór timburverönd með skjólvegg á milli íbúða. Heitur og kaldur pottur ásamt útieldhúsi. Pottar, pallur og útieldhús er frá 2024. Snjallstýring er á potti.
Geymsluskúr á lóð, byggður 2024.
Gólfefni: Flísar á gólfum í forstofu, baðherbergi og geymslu. Annars staðar er 245 mm breitt harðparket frá Birgisson. Gólfhiti í allri íbúðinni.
Sameign:Hjóla- og vagnageymsla.
Fyrirhugað fasteignamat 2026 er 81.050.000,-
Bygging:Burðarvirki er steinsteypt. Útveggir einangraðir að utan og klæddir.
Klæðning er þrískipt: bárujárn á stærstum hluta hússins, lerkiklæðning á 2. hæð við svalir og á 1. hæð við innganga. Slétt ál í kringum skyggni og í stigaopi.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Guðmundur Hallgrímsson Löggiltur fasteignasali í síma 898-5115 / Gudmundur@fastlind.is-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaup), 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Lántökugjald af veðskuldabréfi mishátt milli lánastofnuna. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu 74.900,