Miklaborg kynnir. Falleg og björt 83,2 fm þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúðin snýr til suðurs og er staðsett á þessum eftirsótta stað, þar sem öll þjónusta er við höndina. Íbúðin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, baðherbergi og tvö góð svefnherbergi. Sérgeymlsa með hillum í kjallara og sameiginlegt þvottahús er á hæðinni. Íbúðin er laus strax.
Vel staðsett íbúð í Mjóddinni. Stutt er í alla þjónustu, verslanir, strætó, skóla, heilsugæslu og margskonar aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar gefur Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Nánari lýsing
Inngangur/hol með skáp og flísar á gólfi.
Eldhús með eldri innréttingu, rúmgóður borðkrókur og útgengi á stórar suðursvalir.
Flísar á gólfi
Stofa björt og rúmgóð með stórum gluggum og parketi á gólfi.
Tvö svefnherbergi annað stærra með góðum skápum
meðfram einum veggnum og hitt minna. Parket á gólfum.
Baðherbergi er með baðkari með sturtuaðstöðu, flísalagt gólf og flísar fyrir ofan baðkar.
Sameiginlegt þvottahús á hæðinni fyrir allar íbúðir hæðarinnar.
Í sameign er sérgeymsla íbúðarinnar auk þess sem snyrtileg vagna- og hjólageymsla.
Íbúðin er staðsett í húsi við hliðina á verslunarmiðstöðinni Mjódd og er gönguleiðin þar á milli með snjóbræðslukerfi sem tryggir gott aðgengi allt árið um kring.
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
110 | 91,3 | 83,9 | ||
110 | 92,5 | 86,9 | ||
110 | 93,8 | 88,9 | ||
110 | 97,2 | 89 | ||
109 | 105,9 | 64,5 | ||
221 | 83,8 | 75 |