LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir 2.herbergja 57.6 m2 íbúð merkt 02-03 í nýlegu lyftuhúsi í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðinni fylgir bílastæði í kjallara merkt 203. Samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 57.6 m2 þar af er 10,8 m2 sérgeymsla í sameign.
Íbúðin skiptist í forstofu/anddyri, alrými með eldhúsi, 1 svefnherbergi og baðherbergi með þvottaaðstöðu.
Nánari lýsing. Forstofa með góðum fataskáp og parketi á gólfi. Eldhúsið er opið inn i stofu með fallegri hvítri innréttingu með efri og neðri skápum með granít borðplötu, helluborð og vifta, litil uppþvottavél. Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðar svalir til vesturs. Baðherbergi með flísalögðu gólfi og hluta til á veggjum , hvít innrétting með efri skápum með speglahurðum, handklæðaofn, walk-in sturta og opnanlegur gluggi. Svefnherbergi með tveimur rennihurðum og fataskáp á heilum vegg, gluggar á tvo vegu, parket á gólfi. Geymsla með máluðu gólfi. Stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni.
Frábærlega staðsett íbúð í fallegu fjölbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur. Skjólgóður inngarður og gönguleiðir eru hannaðar af landslagsarkitekt hússins. Hverfið liggur ákaflega vel við samgöngum og styður vel við bíllausan lífsstíl fyrir þau sem það kjósa.
Tvö stigahús með lyftum eru í húsinu. Innkeyrsla í bílakjallara er um inngötu frá Vitastíg. Í húsinu eru tvær kjallarahæðir með bílastæðum og geymslum. Burðarvirki hússins er steinsteypt, veggir einangraðir að utan og klæddir með álplötum, steyptum plötum og viðarklæðningu. Hluti jarðhæðar og kjallara er einangraður að innan og múrhúðaður.
Húsgjöld eignarinar eru 20.682 kr á mánuði, innifalið í húsgjöldum er allur almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, húseigandatrygging, rafmagn í sameign, þrif sameignar og þjónustukaup af Rekstrarumsjón. Engar fyrirhugaðar eða samþykktar framkvæmdir eru á vegum húsfélags.
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
10/10/2019
4.510.000 kr.
40.900.000 kr.
57.6 m2
710.069 kr.
Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.