***DOMUSNOVA KYNNIR * ÍBÚÐ VIÐ HAFIÐ***
Jöfursbás 7B, Reykjavík - íbúð 0203. 2ja herbergja íbúð íbúð 54,9fm. á annari hæð í lokuðu stigahúsi, þar af geymsla 6,2fm. (merkt 0012) í kjallara. Íbúðin er skemmtilega hönnuð með góðu svefnherbergi. Svalir til vesturs út frá stofu með útsýni til sjávar.
Íbúðin er með aukinni lofthæð yfir 280cm.
Fjölbýlishúsið stendur mjög vel gagnvart útsýni til sjávar og er ekki í þéttum íbúðarkjarna sem gerir íbúðina mun bjartari og gefur henni meiri gæði.
Innanhúss hönnuður kom að hönnun allra íbúðarinnar sem er m.a. með sérsmíðaðar innréttingar hjá VOKE-III, blöndunartæki eru frá Grohe og hreinlætistæki frá Duravit. Quartz steinn frá Technistone er á eldhúsi og baði. Parket og flísar er frá Ebson og eldhústæki frá AEG.
Lýsing íbúðar:
Forstofa rúmgóð með innbyggðum fataskáp
Eldhús opið inn í stofu með fallegri innréttingu sem nær til lofts. Innrétting er sérsmíðuð frá VOKE með kvarts borðplötu.
Stofa með góðum glugga og útgengt á svalir.
Baðherbergi flísalagt bæði gólf og hluti veggja. Vönduð innrétting með kvarts borðplötu. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu á baði.
Svefnherbergi er rúmgott með vönduðum fataskáp sem nær til lofts
Geymsla á sér geymslugangi í kjallara hússins
Hjóla-og vagnageymsla í kjallara með góðu aðgengi.
Djúpgámar á lóð fyrir flokkað rusl
Hitalagnir í helstu gönguleiðum lóðar
Hverfið:
Við Eiðsvík í Gufunesi er að rísa spennandi íbúðabyggð í gömlu iðnaðarhverfi sem nú hýsir kvikmyndaver og fyrirtæki í skapandi greinum. Landslagið er einstakt, vogskornir klettar, strendur með svörtum og gylltum sandi, fuglalíf og útsýni yfir Geldinganes, Viðey, Esju og miðborgina. Engar götur skilja byggðina frá náttúrunni og einungis hjóla- og göngustígar liggja að hafi.
Vatnastrætó, ylströnd, göngubrú út í Viðey og góðir göngu- og hjólastígar er meðal þess sem mun einkenna þetta skemmtilega hverfi. Það er einstakt að eiga kost á slíkri náttúruperlu í miðri höfuðborginni.
Það er stutt í alla þjónustu, hvort sem það er í verslun, skóla, leikskóla eða íþróttamannvirki. Í Spönginni má m.a. finna ýmsar matvöruverslanir, vínbúð, veitingastaði, bókasafn, apótek, heilsugæslu, menningarmiðstöð og tónlistarskóla. Stutt er í Vættaskóla sem er grunnskóli og Borgarholtsskóla sem er framhaldsskóli. Þá eru fjölmargir leikskólar í nágrenninu auk þess sem golfvöllur er skammt undan.
Sýni alla daga, hafið samband við:
Agnar Agnarsson lgfs., s. 820-1002 eða agnar@domusnova.is
NÁNARI LÝSING:
HÖNNUÐIR: Húsið er hannað af ARKÞING Arkitektum. Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.
HÚSIÐ: Húsið er klætt að utan með fallegri og slitsterkri klæðningi og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir ál-tré gluggar frá Byko sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR: Aukin lofthæð, 280 cm og gólfsíðir gluggar víða. Vandaðar sérsmíðaðar innréttingar frá VOKE III
Crystal Diamond Polished Quartz steinn á borðplötum í eldhúsi og frá Tecnistone á baðherbergi. Rafmagnstæki eru af vandaðri gerð frá AEG. Span hellurborð, Vifta útdraganleg AEG Ciak Led Veggofn.
Blöndunar- og hreinlætistæki, vaskur og salernisskál frá Duravit (Duravit D-Code og Duravit D-Neo Rimless). Blöndunartæki eru öll í krómi frá Grohe.
Gólfefni með vönduðu parketi á meginflötum en á baðherbergi eru vandaðar ljósgráar 60x60cm flísar frá EBSON.
GEYMSLA: Góð geymsla í kjallara ásamt hjóla-og vagnageymslu.
SAMEIGINLEGUR GARÐUR: Einstaklega fallegur og hannaður af arkitekt. Gróður gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu.
AFHENDING: Íbúðin getur verið laus eftir samkomjlagi..
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Seljandi áskilur sér allan rétt til að gera efnis-, tæknilegar- og útlits breytingar meðan á byggingaframkvæmd stendur.
Myndir í söluyfirliti þessu eru tölvugerðar og endurspegla gæði og efnisval íbúða almennt en eiga ekki endilega við um viðkomandi eign.
Heimild seljanda til að breyta eignaskiptasamning sé þess þörf án þess þó að rýra eignarrétt kaupanda. Innréttingateikningar eru þær sem gilda ef misræmi er milli arkitektateikninga og innréttingateikninga og eru þær áritaðar og hluti samningsins.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.