Lind fasteignasala kynnir glæsilega og einstaklega vel skipulagða 4ra herbergja efri hæð með sérinngangi í tvíbýli við Bjarkarás 9 í Garðabæ.
Stærð eignarinnar er alls 142 fm og skiptist samkæmt Þjóðskrá Íslands í 137 fm íbúð og 5 fm geymslu.
Sér bílastæði í upphitaðri bílageymslu fylgir eigninni, ásamt hlut í sameiginlegum rýmum og reiðhjólageymslum.
Mikið útsýni er úr eigninni m.a. til Esju, Bláfjalla og Reykjaness.
Stórglæsilegar og skjólsælar rúmlega 50 fm þaksvalir til suðvesturs tilheyra.
Eignin skiptist í: forstofu, stórt alrými með eldhúsi, borðstofu, stofu og sjónvarpsstofu. Á gangi má finna þvottahús, baðherbergi, tvö barnaherbergi ásamt hjónasvítu með sér baðherbergi.
Nánari upplýsingar veitir:
Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is
Nánari lýsing:
Gengið er upp upphitaðar upplýstar útitröppur. Yfir palli við inngang er steypt skyggni og glerskýli til varnar veðri og vindum. Sérinngangur.
Forstofa: Rúmgóðir fataskápar og stórir gluggar með miku útsýni til suðausturs. Millihurð er milli forstofu og alrýmis.
Alrými: Afar rúmgott, samanstendur af eldhúsi með borðkrók. Sérsmíðuð kremuð/eikar innrétting, granítsteinn á bekkjum, flísalagt milli skápa, tækjaskápur, AEG helluborð og ofn. Uppþvottavél og amerískur ísskápur með frysti og klakavél (fylgja). Við tekur samliggjandi borðstofa og stofa með stórum gluggum ásamt sjónvarpsholi. Glæsilegt útsýni til Reykjaness og Hafnarfjarðar. Útgengi út á stórglæsilegar þaksvalir úr stofu þar sem pláss er fyrir heitann pott. Lagt fyrir vatni og rafmagni sérstaklega.
Þvottahús: Afar rúmgott þvottahús með sérsmíðaðri innréttingu. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvaski. Geymsluskápar fyrir lín.
Baðherbergi: Vel skipulagt, flísalagt. Hvít innrétting. Walk-in sturtuklefi úr gleri með innbyggðum blöndunartækjum og handklæðaofni ásamt upphengdu salerni.
Barnaherbergi: Eru tvö, bæði með skápum. Annað snýr í norðaustur og hitt í suðaustur.
Hjónaherbergi: Rúmgott, með útsýni til Esju, mikið skápapláss. Inn af hjónaherbergi er sér baðherbergi, flísalagt með hvítri tvöfaldri innréttingu, walk-in sturtu með innbyggðum blöndunartækjum, vegghengdu salerni og gler rennihurð.
Geymsla: 5 fm með sér inngangi og aukinni lofthæð.
Rúmgott einkastæði í bílageymslu merkt B06 búið tengingu fyrir rafbíl. Einnig aðgengi að rafhleðslustöðvum á sameiginlegum útistæðum. Innst í stæði í bílageymslu er pláss fyrir geymslurekka.
Öll gólf parketlögð niðurlímdu eikarparketi að undanskildri, forstofu, eldhúsi og votrýmum sem eru flísalögð.
Viðhald húss og umhirða lóðar á vegum húsfélags.
Um er að ræða bjarta og vel skipulagða eign með einstökum svölum og góðu bílastæði í bílageymslu. Eignin er sérstaklega vel staðsett þar sem stutt er í skóla, verslun og þjónustu.
Bjarkarás er verðlaunagata og hefur Bjarkarás 1-15 hlotið sérstakar viðurkenningar fyrir fallega lóð og vel hirt umhverfi frá Garðabæ
Sjón er sögu ríkari!
Bjarkarás 9, 210 Garðabær, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 228-4535 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Bjarkarás 9 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 228-4535, birt stærð 141.7 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hrafnkell P. H. Pálmason Löggiltur fasteignasali, í síma 690 8236, tölvupóstur hrafnkell@fastlind.is.
-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.