Fasteignaleitin
Skráð 17. apríl 2026

Laugavegur 170 íb 203 - Heklureitur

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
99 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
103.900.000 kr.
Fermetraverð
1.049.495 kr./m2
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25364101
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Glæsilegar íbúðir í fjölbreyttum stærðum við Heklureit þar sem áhersla er lög á nútímalega hönnun með vönduðum sérsmíðuðum ítölskum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Stæði fylgir öllum íbúðum. Gólfsíðir gluggar hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn og auka útsýni. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Íbúðir á efri hæðum hafa eigin þakgarða en sameiginlegur þakgarður verður einnig fyrir alla íbúa í húsinu ásamt fallegum inngarði. Frábær staðsetning í miðborginni en þó fjarri skarkala miðbæjarins

NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Oddný María Kristisdóttir, Löggiltur fasteignasali í síma 777-3711 eða oddny@eignamidlun.is

Glæsileg og björt íbúð með tvennum svölum bæði til norðurs úr stofunni og í sólarátt til suðurs. Útbúin gæða ítölskum sérsmíðuðum innréttingum og nýjustu Siemens tækjum. Sér þvottahús. Gólfhiti er í íbúðinni og eru flestir gluggar gólfsíðir. Innréttingaþema er Hlýja með quartz borðplötum í eldhúsi. Einkastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni.

Opinber skráning eignar: 
Íbúð merkt 02-03 við Laugaveg 170, 105 Reykjavík. Fastanúmer eignar: 253-6410. Birt flatarmál er 99.0 fm með svölum og sérgeymslu í sameign. Stæði í bílageymslu merkt 0B-24 fylgir íbúðinni.
Myndir eru af sýningaríbúð.

**Sækja söluyfirlit**

**Heimasíða verkefnis**

Hönnun:
Fágun og gæði voru höfð að leiðarljósi við hönnun íbúðanna. Gluggar nema við gólf og eru hærri til lofts til að hámarka flæði birtu og útsýnis. Gólfhiti er í öllum íbúðum. Studio Homestead komu að hönnun innréttinganna og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Borðplötur ásamt bakplötu eru úr Quarts steini sem er sérframleiddur á Ítalíu frá Santamargherita. Íbúðirnar eru búnar vönduðum tækjum frá Siemens. Á baðherbergjum verða innbyggð blöndunartæki og Quartz borðplata á baðinnréttingu. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða bað eru valin með tilliti til gæða og endingar. 

Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds. Aðkeyrsla að bílakjallara er á tveimur stöðum, frá Nóatúni og Laugavegi.

Afhending miðast við ársbyrjun 2027

Nánari upplýsingar veita fasteignasalar Eignamiðlunar:
Oddný María Kristisdóttir 777-3711 oddny@eignamidlun.is
Kjartan Hallgeirsson 824-9093 kjartan@eignamidlun.is
Kári Sighvatsson 899-8815 kari@eignamidlun.is
Gunnar Bergmann Jónsson 839-1600 gunnarbergmann@eignamidlun.is
Rögnvaldur Örn Jónsson 660-3452 rognvaldur@eignamidlun.is
Unnar Kjartansson 867-0968 unnar@eignamidlun.is 
Lilja Guðmundsdóttir 649-3868 lilja@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Furugerði 25
Bílastæði
Efsta hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Furugerði 25
Furugerði 25
108 Reykjavík
114.4 m2
Fjölbýlishús
413
830 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Álfheimar 25
Opið hús:10. ágúst kl 16:30-17:15
Skoða eignina Álfheimar 25
Álfheimar 25
104 Reykjavík
93.1 m2
Fjölbýlishús
312
837 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Sæviðarsund 25
3D Sýn
Bílskúr
Skoða eignina Sæviðarsund 25
Sæviðarsund 25
104 Reykjavík
116.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
735 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 - 704
Bílastæði
Laugavegur 168 - 704
105 Reykjavík
86.3 m2
Fjölbýlishús
322
1331 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin