Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Klettagata 15

SumarhúsSuðurland/Selfoss-806
131 m2
2 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
609.924 kr./m2
Fasteignamat
52.750.000 kr.
Brunabótamat
73.400.000 kr.
Mynd af Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Jóhanna Kristín Gústavsdóttir
Byggt 1997
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2264280
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Svalir
Upphitun
Danfoss
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

***LAUS VIÐ KAUPSAMNING***

Húsaskjól og Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Glæsilegan sumarbústað á einstökum stað við Klettagötu 15 við bakka Iðu/Hvítá í Laugarási í Biskupstungum. Húsið er skráð 96,9 fm að stærð og bílskúr/gestahús er 34,0 fm að stærð, samtals 130,9 fm. Lóðin er 3503 fm að stærð og er leigulóð. Hitaveita, heitur pottur og stutt í helstu náttúruperlur suðurlands, Laugarás Lagoon og ýmsa aðra afþreyingu. 

Húsið skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi en auðvelt er að bæta 3ja herberginu við, baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél, sjónvarpsrými, eldhús, stofu-og borðstofu sem er eitt opið og bjart rými. Bílskúr/gestahús sem gert er ráð fyrir einu svefnherbergi en er óklárað og býður því upp á ýmsa möguleika.

SMELLTU HÉR TI AÐ SKOÐA VIDEO AF EIGNINNI

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ UPPLÝSNGABÆKLING UM EIGNINA


Nánari upplýsingar veitir og bókar skoðanir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is 

Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í rúmgóða forstofu með dökkum tvöföldum fata-og skóskápum, flísar á gólfi. Baðherbergi er innaf forstofu sem er með hvítri innréttingu og vask ofan á borðplötu, upphengdu klósetti og rúmgóðum sturtuklefa, þvottavél og útgengi út í garð. Rúmgott og notalegt sjónvarpshol með eikarplankaparketi. Eldhús, stofa-og borðstofa eru eitt opið og bjart rými og útgengi út á um 90 fm verönd sem umlykur húsið að stórum hluta og einstöku útsýni yfir Iðu/Hvítá, eikarplankaparket á gólfi. Eldhúsinnréttingin er hvít með rúmgóðri eyju sem er með innbyggðum vask, keramikhelluborði, bakaraofni og borðplötu úr gegnheilli eik.Svefnherbergin eru tvö, hjónaherbergið er mjög rúmgott og bjart með gólfsíðum gluggum og rennihurð út á veröndina, rúmgóður hvítur fataskápur og parket á gólfi. Heitur pottur á verönd sem er með einstöku útsýni út á ánna Iðu/Hvítá. Bílskúrinn/gestahúsið er með bílskúrshurð og einu svefnherbergi, sérinngangi og verönd sem er ekki fullklárað og býður því upp á ýmsa möguleika.      

Hér er um að ræða glæsilegan og vel við haldin sumarbústað á einstökum stað við bakka Iðu/Hvítá á einum besta stað á Suðurlandinu þar sem hitaveita er til staðar og einungis klukkutíma akstur frá höfuðborginni og stutt í helstu náttúruperlur Suðurlands. Í Laugarási er hægt að kaupa sér grænmeti sem er rækað þar, Laugarás Lagoon og veitingastaðurinn Ylja eru í göngufjarlægð ásamt dýragarðinum Slakka. Stutt er að fara í golf á Flúðum og í Kiðabergi. Aðeins einn eigandi af húsinu. Sjón er sögu ríkari.

Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Jóhanna Gustavsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-9470, netfang: johanna@husaskjol.is

Fylgdu Húsaskjóli á TikTok

Húsaskjól fasteignasala - af því að þín fasteign skiptir máli

Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu hér til að fá frítt verðmat
Ertu að leita að sambærilegri íbúð? Smelltu hér til að skrá þig á kaupóskalistann okkar

Fylgdu okkur á Instagram
Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um Skoðaðu hvað okkar viðskiptavinir hafa um okkur að segja
Hvað er í gangi á fasteignamarkaðnum? Skráðu þig á Fréttaskot Húsaskjóls

Húsaskjól advices potential buyers who do not speak or read icelandic to have a translator present when they view and sign an offer,  sales agreement and other documents relating to the purchase of the property.​ 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Húsaskjól fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - fast gjald.  Sjá vefsíðu viðkomandi lánastofnanna
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyrar 6
Skoða eignina Eyrar 6
Eyrar 6
806 Selfoss
92.1 m2
Sumarhús
413
857 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Ártún 30
Skoða eignina Ártún 30
Ártún 30
806 Selfoss
116.5 m2
Jörð/Lóð
413
676 þ.kr./m2
78.800.000 kr.
Skoða eignina Víkurvegur 2
Skoða eignina Víkurvegur 2
Víkurvegur 2
806 Selfoss
112 m2
Sumarhús
413
705 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Ártún 30
Skoða eignina Ártún 30
Ártún 30
806 Selfoss
116 m2
Sumarhús
423
679 þ.kr./m2
78.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin