Fasteignaleitin
Skráð 5. maí 2026

Vitastígur 10

EinbýlishúsVestfirðir/Bolungarvík-415
228.9 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
292.267 kr./m2
Fasteignamat
47.850.000 kr.
Brunabótamat
100.850.000 kr.
Friðjón Örn Magnússon
löggiltur fasteignasali
Eignir í sölu
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2121687
Landnúmer
139416
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Raflagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Svalir
1
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg kynnir: Vel skipulagt sjö herbergja einbýlishús við Vitastíg 10 í Bolungarvík. Húsið er samtals 228,9 fm að stærð og þar af er skráður bílskúr 21,3 fm. Eignin skiptist í fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, eldhús, stofu og borðstofu, stórt anddyri og bílskúr á lóð.

Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is


Komið inn í stórt anddyri sem tengir saman báðar hæðir. Á gólfi er ljóst steinteppi og góðir fataskápar. Neðri hæðin skiptist í fjögur svefnherbergi, baðherbergi með baðkari og sturtu og þvottahús. Efri hæðin skiptist í stóra stofu og borðstofu, baðherbergi með sturtu, svefnherbergi þar sem útgengt er út á svalir og eldhús. Frístandandi bílskúr á lóðinni.

Neðri hæð:

Gengið niður nokkrar tröppur í anddyrinu. Fataskápar og steinteppi á gólfi í anddyri. Gengið þaðan inná parketlagðan gang. Á neðri hæð eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Tvö svefnherbergi eru stór og rúmgóð með fataskápum. Hin tvö eru minni og án fataskápa. Ljóst parket á gólfum og gólfhiti. Baðherbergið er rúmgott með baðkari og sturtu og stórri innréttingu. Spegill fyrir ofan skolvask og upphengt WC. Þvottahús er einnig rúmgott. Flísar á gólfi. Borðplata með skolvaski og góð innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara undir borðplötum.

Efri hæð:

Gengið upp nokkrar tröppur í anddyrinu. Í holinu á efri hæðinni eru einnig fataskápar og steinteppi á gólfi. Á efri hæðinni er eldhús, baðherbergi, stórt herbergi sem í dag er nýtt sem sjónvarpsherbergi, stofa og borðstofa.

Eldhús er rúmgott með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi. Lítill borðkrókur og gert ráð fyrir frístandi ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Parket á gólfi með gólfhita. Baðherbergi á gangi við hliðina á eldhúsinu. Ljósar flísar á veggjum og gólfi. Sturta, ljós innrétting með spegli fyrir ofan skolvask og upphengt WC. Svefnherbergið á annarri hæðinni er í dag nýtt sem sjónvarpsherbergi. Útgengt út á svalir. Parket á gólfi með gólfhita. Stofa og Borðstofa eru í sama rými. Gott pláss fyrir borðstofuborð og opin stofa. Parket á gólfi með gólfhita. Frístandandi bílskúr er lóðinni sem er án rafmagns og hita.

Allar nánari upplýsingar veitir Friðjón Örn Magnússon, löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is



DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/07/202225.150.000 kr.52.000.000 kr.228.9 m2227.173 kr.
20/04/202118.950.000 kr.45.000.000 kr.228.9 m2196.592 kr.
30/04/201514.350.000 kr.23.000.000 kr.228.9 m2100.480 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (47)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Árblik 1
Bílskúr
Skoða eignina Árblik 1
Árblik 1
740 Neskaupstaður
129.8 m2
Einbýlishús
413
516 þ.kr./m2
66.990.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
244 m2
Einbýlishús
543
413 þ.kr./m2
100.700.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 48
Skoða eignina Áshamar 48
Áshamar 48
221 Hafnarfjörður
80.7 m2
Fjölbýlishús
312
841 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Strandarvegur 21
Skoða eignina Strandarvegur 21
Strandarvegur 21
710 Seyðisfjörður
1,317.6 m2
Atvinnuhúsn.
53 þ.kr./m2
69.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin