Fasteignaleitin
Skráð 15. ágúst 2026

Byggakur 19

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
227.6 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
215.000.000 kr.
Fermetraverð
944.640 kr./m2
Brunabótamat
130.700.000 kr.
Byggt 2017
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
23068191
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir: 

Afar glæsilegt og vandað endaraðhús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr á mjög eftirsóttum stað við Byggakur í Garðabæ.
Veglegur og gæðamikill frágangur og efnisval - fjögur svefnherbergi - tvö baðherbergi - stór afgirt timburverönd - þrjú bílastæði við húsið.
Húsið er skráð 227,6 fm (þar af innbyggður bílskúr 29 fm).

Bókið skoðun hjá Ólafi M. Ólafssyni löggiltum fasteignasala í síma 865-8515 / olafur@hibyli.is
 
Lýsing eignar:
Neðri hæð
Forstofa
: Flísar á gólfi, góðir fataskápar og gólfsíður gluggi sem veitir góða birtu.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, upphengt salerni, svört eikarinnrétting undir vaski með innbyggðum blöndunartækjum og kvarts borðplötu, baklýstur spegill ofan við vask . Sturta með innbyggðum blöndunartækjum og vegginnbyggðri hillu.
Bílskúr: Innangengt úr forstofu inn í bílskúrinn, epoxy á gólfum, gott geymslupláss, vegghillur og vaskur.
Eldhús: Flísar á gólfi, svört eikarinnrétting með mjög góðu skápaplássi, hvítir efri skápar að hluta með innfelldri lýsingu, eldunareyja sem unnt er að sitja við, kvarts borðplötur á eyju og á vegginnréttingu sem ná niður í gólf og flæðir einnig inn í tækjaskáp, vönduð eldhústæki frá Miele og Liebherr, gott vinnupláss, gluggi á eldhúsi.
Borðstofa: er í framhaldi af eldhúsi, gólfsíðir gluggar, flísar á gólfi, útgengt á stóra afgirta timburverönd með skjólveggjum. 
Stofa: Borðstofa, eldhús og stofa mynda gott opið alrými. Stofan er með gólfsíðum gluggum og olíubornu eikarparketi á gólfi.

Innfelld lýsing er í loftum á neðri hæð.

Efri hæð:
Gengið upp parketlagðan stiga með glerhandriði á efri hæð hússins. Gangur á efri hæð er með parketi á gólfi og innfelldri lýsingu í loftum, loftgluggi gefur fallega og góða birtu niður í rýmið.
Sjónvarpsherbergi: Á hægri hönd þegar komið er upp á efri hæð með parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á veggjum og gólfi, frístandandi baðkar, vegginnbyggð  blöndunartæki við vaska , upphengt salerni, svartir eikarskápar neðan við vaska og speglaskápar ofan við vaska með lýsingu, flísalagður sturtuklefi með innbyggðum blöndunartækjum. Vegginnbyggðar hillur við baðkar og sturtu, gluggi.
Þvottahús: Flísar á gólfi, hvítir skápar með miklu plássi, skolvaskur í innréttingu, tengi fyrir vélar, gluggi.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með parketi á gólfi, svartir eikarfataskápar, útgengi á djúpar og skjólgóðar svalir með gólfklæðningu.
Barnaherbergi: 3 rúmgóð barnaherbergi eru á hæðinni öll með svörtum eikarfataskápum og parketi á gólfi.
Geymsla/fataherbergi: Til móts við hjónaherbergi er fataherbergi/geymsla með parketi á gólfi.

Fallegt útisvæði er við bakhlið hússins og meðfram hliðinni. Afgirt timburverönd, skjólveggir og timburklædd blómaker, lýsing í skjólveggjum. Búið er að gera ráð fyrir heitum potti á pallinum (vatn og frárennsli tilbúið).
Vinnusvæði (útieldhús) með náttúruflísalagðri borðplötu er við grillsvæðið.
 
Bílaplan framan við bílskúrinn er með snjóbræðslu og stæðum fyrir tvo bíla, hægra megin við þrefalt steypt sorptunnuskýli er einnig eitt bílastæði til viðbótar. Fyrir framan húsið eru einnig hellulögð verönd með steyptum skjólveggjum.

Hurðir, flísar og olíuborið eikarparket er frá Birgisson.
Allar innréttingar í húsinu eru frá  HTH. Kvarts borðplötur í eldhúsi og á baðherbergi neðri hæðar eru frá Granítsmiðjunni.
Rafstýrð loftun er uppi á þaki hússins fyrir votrými.
Húsið var múrviðgert og málað að utanverðu sumarið 2025.
Búið er að setja upp þriggja fasa hleðslustöð við húsið.

Glæsileg og vel staðsett eign í Akrahverfinu - stutt í skóla, íþróttastarf, tómstundir, líkamsrækt, heilsugæslu og alla helstu verslun og þjónustu. Hofsstaðaskóli og FG eru í göngufæri.
 
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Híbýli
http://www.hibyli.is

Myndir (64)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásakór 15
Bílastæði
Opið hús:20. ágúst kl 17:30-18:00
Skoða eignina Ásakór 15
Ásakór 15
203 Kópavogur
157.8 m2
Fjölbýlishús
514
772 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Nýbýlavegur 66
Bílskúr
Opið hús:17. ágúst kl 18:00-18:30
Skoða eignina Nýbýlavegur 66
Nýbýlavegur 66
200 Kópavogur
73.6 m2
Fjölbýlishús
212
923 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Hraunsholtsvegur 4
Bílskúr
Á einni hæð
Hraunsholtsvegur 4
210 Garðabær
237 m2
Einbýlishús
613
907 þ.kr./m2
214.900.000 kr.
Skoða eignina Engihjalli 19
Skoða eignina Engihjalli 19
Engihjalli 19
200 Kópavogur
78.1 m2
Fjölbýlishús
312
639 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin