Fasteignaleitin
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 13. ágúst 2026

Hagamelur 51

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
69.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
1.008.658 kr./m2
Brunabótamat
39.250.000 kr.
Byggt 1977
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20264063
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Borg Fasteignasala og María Mjöll kynna Hagamel 51 – bjarta og vel skipulagða 69,3 fm íbúð á efstu hæð í snyrtilegu fjölbýli á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin nýtur fallegrar birtu, góðs skipulags. Stutt er í alla helstu þjónustu, þar á meðal Sundlaug Vesturbæjar, Melabúðina, skóla, leikskóla, kaffihús.
Athugið að geymsla eignarinnar er ekki innifalin í uppgefnum birtum fermetrafjölda.


Skipulag:
Forstofa, stofa og borðstofa, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, svalir og sérgeymsla í sameign.

Nánari lýsing:
Komið er inn í opið alrými sem tengir saman helstu vistarverur íbúðarinnar. Stofan er rúmgóð með stórum gluggum sem hleypa fallegri birtu inn og skapa hlýlegt yfirbragð. Úr stofu er útgengt út á svalir. Parket er á gólfum í stofu og herbergjum.
Eldhúsið er snyrtilegt með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og flísum á gólfi. 
Hjónaherbergið er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi. Barnaherbergið er einnig með parketi á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt með baðkari og sturtuaðstöðu, fallegri baðinnréttingu og upplýstum spegli. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.
Í sameign fylgir íbúðinni sérgeymsla.

Annað:
Við húsið var malbikað nýtt bílaplan 2022 
Og nýjar útidyrahurðir 2026

Falleg íbúð í í rótgrónu og vinsælu hverfi í Vesturbænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla, leikskóla, íþrótta- og útivistarsvæði. 

Nánari upplýsingar veitir María Mjöll Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.



 
 






 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (33)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Strandgata 26 íb. 307
Strandgata 26 íb. 307
220 Hafnarfjörður
87.6 m2
Fjölbýlishús
111
1083 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Lautargata 5 íb. 201
Lautargata 5 íb. 201
210 Garðabær
89.9 m2
Fjölbýlishús
312
967 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 68A
Skoða eignina Hverfisgata 68A
Hverfisgata 68A
101 Reykjavík
37.6 m2
Fjölbýlishús
211
1141 þ.kr./m2
42.900.000 kr.
Skoða eignina Bjarkavellir 1
Bjarkavellir 1
221 Hafnarfjörður
72 m2
Fjölbýlishús
312
868 þ.kr./m2
62.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin