Fasteignaleitin
Skráð 15. jan. 2024

SPÁNAREIGNIR - La Finca Golf

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
104 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
64.500.000 kr.
Fermetraverð
620.192 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
923150126
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Góð verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Á LA FINCA GOLFVELLINUM* - *FRÁBÆR STAÐSETNING OG GOTT VERÐ*

Vönduð og falleg einbýlishús á einni hæð við hinn glæsilega La Finca golfvöll, í þægilegu göngufæri frá Algorfa, skemmtilegum spænskum smábæ. Um 30 mín akstur suður af Alicante. Húsin eru vel skipulögð með góðu alrými, þremur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Sér garður með möguleika á einkasundlaug. Stór þakverönd með útsýni. Bílastæði inni á lokaðri lóð. Á sama stað er einnig mögulegt að velja hús með fjórum svefnherbergjum og þremur baðherbergjum og er þá fjórða herbergið + baðherbergi á efri hæð.

Allar upplýsingar gefa
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, gsm 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869 

Nánari lýsing:

Húsið skiptist í gott eldhús, með góðri tengingu við útisvæði og stofu/borðstofu í rúmgóðu alrými.
Þrjú  svefnherbergi og tvö baðherbergi. Stærri hús eru líka í boði.

Út frá stofunni er stór verönd og góður, lokaður garður með flottri aðstöðu til að njóta sólar, grilla ofl. 

Mikið innifalið:
Fullfrágengin lóð.
Stór þakverönd með góðu útsýni.
Rafmagnstæki í eldhúsi ásamt þvottavél.
Rafknúin gluggatjöld í stofu.
Hiti í gólfum á baðherbergjum.
Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun.

Hér er um einstaka eign og staðsetningu að ræða. 
Verð frá 445.000 evrum + kostn. (64.500.000 ISK, gengi 1 evra=145 ISK)

Húsið er 104 fm. + 19 fm. verönd. Samtals 123 fm.
Einnig fylgir 87 fm. þakverönd.

Húsin eru vel staðsett í göngufæri við Klúbbhúsið á La Finca Golfvellinum. Gott úrval veitingastaða og verslana í litlum kjarna eru í stuttu göngufæri og Algorfa, skemmtilegur spænskur smábær með sál og sjarma er í þægilegu göngufæri. Einnig eru fjölmargir góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Campoamor, Las Colinas, Villamartin, Las Ramblas, Lo Romero, Roda Golf,  La Marquesa og fleiri.

Ca. 20 mín akstur er niður á ströndina. Ca. 10-20 mín akstur verslunarmiðstöðvarnar Habaneras og La Zenia Boulevard. Ennfremur er stutt að keyra í skemmtilega bæi í næsta nágrenni, t.d. Algorfa, Benijofar, San Miguel de Salinas og Ciudad Quesada.

Glæsilegt fimm stjörnu golf og spa hótel í göngufæri. Þar er hægt að njóta dekurs og borða góðan mat.
Hér er um að ræða flotta eign fyrir golfara og fólk sem kann að njóta lífsins.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því verið ca. 13%.

Eiginleikar: þakverönd, útsýni, sér garður, bílastæði, ný eign, golf,
Svæði: Costa Blanca, La Finca,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 33
67 ára og eldri
B75A6463.jpg
Skoða eignina Hjallabraut 33
Hjallabraut 33
220 Hafnarfjörður
69.3 m2
Fjölbýlishús
211
864 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Koparslétta 9
Skoða eignina Koparslétta 9
Koparslétta 9
162 Reykjavík
129.5 m2
Atvinnuhúsn.
2
401 þ.kr./m2
51.900.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Bílastæði
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
68 m2
Fjölbýlishús
322
565 þ.kr./m2
38.400.000 kr.
Skoða eignina Hamravík 17
Skoða eignina Hamravík 17
Hamravík 17
800 Selfoss
100.4 m2
Raðhús
413
696 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin