Erling Proppé & REMAX: Björt og mjög falleg 4ra herbergja neðri sérhæð, sólrík verönd með heitum potti, sérinngangi og tveimur sér bílastæðum við Lindarvað 11, 110 Norðlingaholti. Allar frekari upplýsingar: Erling Proppé lgf. // 690-1300 // erling@remax.isSkv. Fasteignamati ríkisins er heildarstærð eignarinnar 123,7 fm, þar af er geymsla 7,5. fm. Auð auki bætist við ca. 15 fm geymsluskúr sem er ekki inn í fermetratölu eignarinnar.Framkvæmdir síðustu ára: -//- Skipt um gólfefni á öllu nema votrýmum, harðparket 2019
-//- Skipt um borðplötu í eldhúsi ásamt vaski, blöndunartækjum, helluborði, innbyggðum ísskápi og uppþvottavél 2020
-//- Skjólveggur í garði endurnýjaður og garðinum lokað að fullu 2021
-//- Heitur pottur settur upp með hitastyringu og rafdrifnum loka sem hægt er að stýra í símanum 2022Íbúðin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing: Íbúðin er með gólfhita og stýringu í hverju rýmiForstofa: Gengið inn um sérinngang, rúmgott anddyri með hvítum fataskáp og flísum á gólfi.
Herbergi I: Er innangengt úr forstofu með glugga á tvo vegu, rúmgott með hvítum fataskápum og parket á gólfi.
Herbergi II: Er rúmgott með hvítum fataskápum og parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi og hvítum fataskápum.
Baðherbergi: Rúmgott með sturtuklefa og baðkari. Innrétting við vask, vegghengt salerni, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús: Er innan íbúðar, með góðri innréttingu meðfram vegg, tengi fyrir vélar í vinnuhæð og flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóð og björt opin stofa og borðstofa með stórum gluggum og útgengi um tvöfalda svalarhurð út á sólríka suður verönd.
Eldhús: Er opið inn í stofu með fallegri innréttingu og eyju. Nýleg tæki sem telja spanhelluborð, ofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur
Garðurinn: Er sannkallaður sælureitur í suður með heitum potti sem hægt er að stýra með appi, góðri grasflöt og rúmgóðum geymsluskúr fyrir útihúsgögnin t.d.
Geymslan: Er 7,5 fm á jarðhæð, aðgengi að utan.
Tvö sér bílastæði við húsið, hleðslustöð og snjóbræðsla í bílaplani.
Um er að ræða glæsilega, vel skipulagða sérhæð á jarðhæð með stórri suður verönd með heitum potti og góðum geymsluskúr. Barnvænt og rólegt hverfi þar sem skóli og leikskóli eru í göngufæri ásamt Heiðmörk og Elliðavatni.Vegna mikilla umsvifa á fasteignamarkaðinum óska ég eftir öllum eignum á skrá, vönduð vinnubrögð og
frítt skuldbindingarlaust verðmat - Smelltu hér ! Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Erling Proppé lgf // 690-1300 // erling@remax.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.