Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2026

Dagverðarnes 119

SumarhúsVesturland/Borgarnes-311
110.9 m2
4 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.900.000 kr.
Fermetraverð
720.469 kr./m2
Brunabótamat
73.100.000 kr.
Byggt 1998
Pallur
Heitur pottur
Margir Inng.
Fasteignanúmer
22368931
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Margir inngangar

Eignamiðlun kynnir:

Falleg og einstaklega vel staðsett 110,9 fm sumarhúsaeign á ríflega 4000 fm eignarlóð í Dagverðarnesi. Stórbrotið útsýni er yfir Skorradalsvatn. Eignin samanstendur af 80,9 fm aðalhúsi og 30 fm gestahúsi. Að auki er um 10 fm óskráð geymsla undir húsi. Stór timburpallur umlykur aðalhúsið að stórum hluta og þar er heitur pottur með fallegu útsýni. Lóðin er gróin og skjólgóð og húsið stendur fallega í landslaginu. Aðalhúsið er einstaklega bjart og hlýlegt með mikilli lofthæð og stórum gluggum í stofu sem ramma inn glæsilegt útsýnið yfir Skorradalsvatn og fjalllendið í kring. Gestahúsið er í góðri tengingu við aðalhúsið. Frábært aðgengi er að Skorradalsvatni og öllu því sem vatnið hefur upp á að bjóða. Eignin hefur fengið gott viðhald alla tíð. Aðalhúsið var byggt árið 1998 en gestahúsið árið 2013.

**Sækja söluyfirlit**

Aðalhús - 80,9 fm:

Komið er inn í anddyri með góðu skápaplássi og náttúruflísum á gólfi. Stofa og borðstofa eru í glæsilegu alrými með mikilli lofthæð og stórum gluggum sem ná hátt upp í gafl hússins. Útsýnið yfir vatnið nýtur sín einstaklega vel úr þessu rými. Viðarklætt loft og parket á gólfi gefa húsinu hlýlegt og notalegt yfirbragð. Eldhús er opið við stofu og borðstofu, með viðarinnréttingu og góðu vinnuplássi. Eldhús er að hluta nýuppgert. Gott sjónvarpshol er við stofu sem auðveldlega er hægt að breyta í herbergi. Að auki eru tvö svefnherbergi og gott baðherbergi í aðalhúsinu. Náttúruflísar eru á gólfi baðherbergis. Við aðalhúsið er jafnframt geymsla með sérinngangi.

Gestahús – 30 fm:
Á lóðinni er 30 fm sérstætt gestahús sem eykur notagildi eignarinnar verulega. Þar eru tvö rúmgóð svefnherbergi, alrými/gangur og baðherbergi með sturtu. Útgengt er á pall við gestahúsið.
Gestahúsið býður upp á gott næði og er frábær viðbót fyrir stærri fjölskyldur, vini og aðra gesti.

Pallur og umhverfi
Umhverfis aðalhúsið er stór og glæsilegur um 100 fm timburpallur með góðu rými fyrir útihúsgögn, borðhald og aðra útiveru. Á pallinum er heitur pottur, þaðan sem njóta má kyrrðarinnar og hins fallega umhverfis. Lóðin sem er 4023,5 fm er gróin og skjólgóð með trjám og fjölbreyttum gróðri sem veitir gott næði. Eignin stendur fallega í hlíðinni og útsýnið yfir Skorradalsvatn er stórbrotið bæði úr húsinu og af pallinum.

Nánari upplýsingar veitir: 
Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða lilja@eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (60)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vatnsendahlíð 218
Á einni hæð
Heitur pottur
Vatnsendahlíð 218
311 Borgarnes
102 m2
Sumarhús
413
832 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Lambaás 9
Heitur pottur
Skoða eignina Lambaás 9
Lambaás 9
311 Borgarnes
102 m2
Sumarhús
322
636 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðabyggð 5
Heitur pottur
Skoða eignina Hlíðabyggð 5
Hlíðabyggð 5
320 Reykholt í Borgarfirði
131,3 m2
Sumarhús
423
570 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Fauskás 6
Skoða eignina Fauskás 6
Fauskás 6
311 Borgarnes
129,1 m2
Sumarhús
313
464 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin