Afar gott 16 hesta hesthús (endahús) með tvennum stórum sérgerðum við Selás 5, efri götu í hesthúsahverfinu í Borgarnesi. Hitaveita. Samtals stærð er 132,6 fm.
Glæsilegt 16 hesta hús (8 stíur), á félagssvæði Borgfirðings Borgarnesi. Húsið er sérlega vandað og rúmgott að allri gerð. Tvö stór sérgerði fylgja húsinu. Frábærar reiðleiðir og staðsetning hússins góð, góð aðkoma og bílastæði. Hiti í gólfi og öllum stíum.
Húsið er endahús sem skiptist í tvær hæðir: Neðri hæð: Hesthús. Hesthúsið er innréttað á vandaðan máta fyrir 16 hesta (8x2hestastíur), afar rúmgott miðrými fyrir álagningu og vinnuaðstöðu. Innangengt er á tveimur stöðum inn í húsið, beint inn í hesthúsið og svo inn í rúmgóða forstofu sem leiðir annars vegar upp á kaffistofu og hins vegar inn í hesthús. Innréttingar í hesthúsi eru úr galvaniseruðu stáli og plasti. Í forstofu er sturta. Á efri hæð: Kaffistofa. Innangengt er í forstofu á neðri hæð þar sem hringstigi liggur upp á kaffistofu. Rúmgóð kaffistofa með eldhúsi og baðherbergi. Stór gluggi er á kaffistofunni með góðu útsýni.
Húsið einangrað og klætt að utan með járni. Tvö mjög stór sérgerði fylgja húsinu. Hitaveita. Laust strax.
Stutt er í stóra góða reiðhöll á svæðinu og beitarhólf sem Borgfirðingur úthlutar. Frábært hús sem myndi henta bæði sem frábært áhugamannahús og atvinnuhús fyrir til dæmis hestaleigu, reiðskóla eða annað atvinnutengt. Engin hestaleiga eða reiðskóli er starfræktur á svæðinu þannig að tækifærin eru mikil.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 899-5949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is

Dagsetning
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
Nothæfur samningur
03/07/2014
9.845.000 kr.
13.000.000 kr.
132.6 m2
98.039 kr.
Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.