PRODOMO fasteignasala kynnir 5. herbergja parhús á einni hæð með bílskúr að Brimdal 14, 260 Reykjanesbæ. Innangengt er inn í bílskúr og hægt er að ganga út á stóra viðarverönd bæði frá stofu og bílskúr. Einstaklega glæsileg eign byggð 2020. Innan við 10 mín gangur er í leikskóla og grunnskóla. Handan götunnar í hina áttina eru göngustígar við sjávarsíðuna og yndislegt umhverfi. Eignin er skráð hjá Þjóðskrá Íslands alls 185 m2. Íbúð er skráð 143,5 m2 og bílskúr 41,5 m2.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús og búr innaf eldhúsi, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni og bílskúr. Búið er að gera aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu innst í bílskúr. Þvottahús var áður inn af eldhúsi þar sem er búr í dag.
Nánari lýsing:
Forstofa er með ljósum flísum á gólfi og fataskáp. Frá forstofu er gengið inn í bílskúr, gestasalerni og inn í alrými íbúðar.
Gestasalerni er með flísum á gólfi, upphengt salerni og innréttingu við vask..
Stofa og borðstofa hafa parket á gólfi og er í opnu rými með eldhúsi Útgengi frá stofu út á stóra verönd með skjólveggjum, heitum pott og nýlegum geymsluskúr.
Eldhús er opið inn í stofu og skilur eyja á milli. Whirlpool spanhelluborð í eyju, í innréttingu er innfelld Whirlpool uppþvottavél, sjálfhreinsandi bakaraofn og vínrekki ofan við ísskáp. Steingráar borðplötur á innréttingu.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og hefur parket á gólfi.
Barnaherbergin eru þrjú, parket á gólfum og góðir fataskápar í þeim öllum, einu herberginu hefur verið breytt í fataherbergi og eru skápar úr hjónaherbergi í því herbergi.
Baðherbergi hefur flísar á gólfi og veggjum. Sturta með gleri, baðkar, upphengt salerni, svartur handklæðaofn og góð innrétting við vask.
Bílskúr er með epoxy á gólfi. Lagnagrind, rafmagnstafla og ljósleiðari í bílskúr. Varmaskiptir á vatninu. Rafmagn er 3-fasa. Sjálfvirkur hurðaopnari.
Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er innst í bílskúr og útgengi er út á stóra verönd frá bílskúr.
Garður/lóð framan við hús er hellulagt upphitað bílaplan, á hluta lóðar er grasflötur og aftan við hús til suðvesturs er stór verönd með skjólveggjum, heitum potti og 15 fm nýlegum geymsluskúr..
* Innfelld lýsing er í öllum rýmum íbúðarhúsnæðis.
* Gólfefni eru flísar og parket og flæðir parket á milli rýma án þröskulda.
* Gólfhiti og stýring í öllum rýmum.
* Í bílskúr er epoxy á gólfi.
* Allar innréttingar eru sérsmíðaðar, svarbrúnar og ná upp í loft. Engar höldur á skápum og lokast skúffur og skápar með ljúflokun.
* Útiljós eru með birtunema.
Glæsileg eign sem vert er að skoða
Allar nánari upplýsingar veita:
Hákon Ó. Hákonarson
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 899-1298
hakon@prodomo.is
Lilja Valþórsdóttir
Löggiltur fasteignasali
420-4030 / 860-6886
lilja@prodomo.is
Byggingarlýsing: Einlyft parhús, byggt úr timbri og klætt flísum að utanverðu. Á lóð eru tvö bílastæði og sorpskýli. Hvor húseining er sér brunahólf, þ.e. sér brunahólf er milli húseininganna tveggja (samliggjandi bílskúrar) og sér brunahólf milli íbúðar og bílskúrs. Sökklar og botnplata eru staðsteypt með járnbentri steinsteypu. Gluggar eru timbur-ál og glerjaðir með tvöföldu K-gleri. Þakvirki er varið með þakpappa og báraðri málmklæðningu. Varmaskipti fara fram við inntök hússins. Húsið er hitað upp með gólfhitalögn. Nánari útlistun er að finna í byggingarlýsingu á samþykktri teikningu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.