Fasteignaleitin
Skráð 12. sept. 2024
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Dolores

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
183 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
64.400.000 kr.
Fermetraverð
351.913 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Þvottahús
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
202240724
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Svalir
Verönd og þakverönd
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*RÚMGÓÐ EINBÝLISHÚS Á EINNI HÆÐ Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* - *EINKASUNDLAUG* - *MÖGULEIKI Á KJALLARA"

Falleg, rúmgóð og vel hönnuð einbýlishús á einni hæð  með lokuðum garði og einkasundlaug í Dolores, ekta spænskum bæ, um 30 mín akstur suður frá Alicante.
Þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, góð stofa, borðstofa og rúmgott eldhús. Kjallari sem hægt er að nýta sem tómstundarrými, sjónvarpsherbergi og/eða gestaaðstöðu. Þvottahús og geymsla. Verönd  út frá stofu og einkasundlaug.  Stórar þaksvalir.

Allar upplýsingar veita Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 893 2495. adalheidur@spanareignir.is og
Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. GSM 777 4277. karl@spanareignir.is


Nánari lýsing:
Komið er inn í opið rými þar sem er rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu rými. Þvottahús/geymsla inn af eldhúsi. Þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Vel innréttað fatarými í einu svefnherberginu. Útgengi út á verönd og sundlaugarsvæðið. 
Þakverönd.
Húsinu fylgir óinnréttaður kjallari, sem hægt er að láta innrétta eftir óskum kaupanda gegn aukakostnaði.

Innbyggt kerfi fyrir loftkælingu og hitun. 
Rafmagnsgardínur.
Stæði fyrir bíl í lokuðum garði.

Garðurinn er hellulagður að mestu með útisturtu og einkasundlaug, sem tengist vel góðri verönd út frá stofu. Þar er gott pláss  t.d. til að borða úti eða njóta sólarinnar við sundlaugarbakkann.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, og  La Finca, Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.

Ca. 15 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20-30 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Dolores er hefðbundinn skemmtilegur og líflegur spænskur bær með sál og sjarma, fallegu kirkjutorgi með 18. aldar kirkju og ýmsum skemmtilegum kennileitum. Þar er finna alla nauðsynlega þjónustu og afþreyingu s.s. veitingastaði, matvöruverslanir og ótal margar gönguleiðir í fjölbreytilegri náttúru. Stutt er til næstu bæja, sem eykur fjölbreytnina. Skemmtilegur götumarkaður á föstudögum með fjölbreyttu úrvali af grænmeti og ávöxtum sem ræktað er á svæðinu. 

Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.

Verð miðað við gengi 1Evra=150 ISK:
frá 429.900 evrum  (ISK 64.400.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin, samtals ca. 13%.

Afhending í apríl - júlí 2025.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fá húsin afhent fullbúin húsgögnum gegn aukagjaldi.


Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: bílastæði, sér garður, einkasundlaug, air con, þaksvalir, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Dolores,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
SPÁNAREIGNIR - Vistabella Golf
Spánn - Costa Blanca
144 m2
Einbýlishús
534
447 þ.kr./m2
64.300.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
SPÁNAREIGNIR - Los Alcazares
Spánn - Costa Blanca
151 m2
Parhús
423
422 þ.kr./m2
63.700.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia Resort
Spánn - Costa Blanca
177 m2
Einbýlishús
433
347 þ.kr./m2
61.500.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
155 m2
Einbýlishús
433
434 þ.kr./m2
67.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin