Fasteignaleitin
Opið hús:29. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 24. júlí 2026

Holtagerði 8

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
117.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
791.986 kr./m2
Fasteignamat
87.450.000 kr.
Brunabótamat
58.920.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1960
Jarðhæð
Garður
Pallur
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2062400
Landnúmer
114870
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað um vandamál
Raflagnir
Ekki vitað um vandamál
Frárennslislagnir
Ekki vitað um vandamál
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Ekki vitað um vandamál
Lóðarréttindi
Leigulóð
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Elka lgf., s. 863-8813, og Fasteignasalan TORG kynna mjög vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð á neðri hæð í tvíbýli við Holtagerði 8 í Kópavogi ásamt 18 fm bílskúr.
Heildarstærð eignarinnar er 117,3 fm, þar af er íbúðin 99,3 fm.
Eignin skiptist í forstofu, eldhús með borðkrók, rúmgóða stofu, bjarta sólstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Sameiginlegt þvottahús er í húsinu.
Virkilega björt og vel skipulögð fjölskyldueign með sólstofu, verönd og bílskúr á eftirsóttum stað á Kársnesi.
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing:
Forstofa: Sameiginleg með efri hæð, flísalögð og með góðum skápum.
Eldhús: Bjart með góðu skápa- og vinnuplássi ásamt rúmgóðum borðkrók. Flísar eru á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið inn í sólstofu sem byggð var árið 2004.
Sólstofa: Björt og flísalögð, með gluggum á þrjá vegu og útgengi á verönd.
Svefnherbergi: Þrjú talsins, öll með parketi á gólfi. Góður fataskápur er í hjónaherbergi.
Baðherbergi: Flísalagt með baðkari og sturtuaðstöðu, salerni og innréttingu.
Þvottahús: Sameiginlegt með efri hæð, mjög snyrtilegt og með góðri vinnuaðstöðu.
Bílskúr: Er 18 fm og er við hlið inngangs inní íbúðina.

Holtagerði er vinsæl gata í rótgrónu og fjölskylduvænu hverfi á Kársnesi. Örstutt er í Kársnesskóla og leikskóla, auk þess sem stutt er í verslanir, þjónustu og íþróttaaðstöðu. Fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram strandlengjunni.

Framkvæmdir og viðhald síðustu ára: Húsið var byggt árið 1960, viðbygging árið 1970 og sólstofan árið 2004. Skipt var um raflagnir í stofu og herbergi árið 2004 og um þvottahúsglugga árið 2012. Þak hússins var endurnýjað í heild árið 2014 ásamt þakköntum á bílskúrum. Um árið 2019 var skipt um stofu- og eldhúsglugga á efri hæð, glugga í sameign og útidyrahurð. Aðalrafmagnstafla hússins var endurnýjuð af Tengli vorið 2026.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1960
18 m2
Fasteignanúmer
2062400
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.120.000 kr.

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 18
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
100.1 m2
Fjölbýlishús
312
1068 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Hafnarbraut 12G
200 Kópavogur
100.6 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Tómasarhagi 14
Skoða eignina Tómasarhagi 14
Tómasarhagi 14
107 Reykjavík
97.5 m2
Fjölbýlishús
413
953 þ.kr./m2
92.900.000 kr.
Skoða eignina Álalækur 5-7
Skoða eignina Álalækur 5-7
Álalækur 5-7
800 Selfoss
101.4 m2
Fjölbýlishús
413
620 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin