PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu fallegt fjögurra herbergja endaraðhús ásamt bílskúr að Klettás 12 í Reykjanesbæ.
Samgöngur til og frá svæðinu eru auðveldar og örstutt er á Reykjanesbraut.Einstaklega vel skipulögð eign sem skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og bílskúr. Alrými hússins er opið og bjart.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými, þar er parket á gólfi. Stílhrein svört innrétting í eldhúsi með góðu skápa og vinnuplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta til. Þar er góð innrétting, upphengt salerni og baðkar með sturtu.
Hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp.
Barnaherberbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápur er í öðru þeirra.
Geymsla með parketi á gólfi.
Þvottahús / bílskúr - Þvottahús var áður inn af bílskúr en búið er að opna á milli. Flísar á hluta gólfs og rest málað. Innréttingar í skúr eru nýlegar en fronta vantar. Gott geymsluloft er yfir góðum hluta hússins. Innangengt er í þessi rými.
Lóð er frágengin á snyrtilegan hátt. Stór hellulögð innkeyrsla. Beggja megin við húsið er góð hellulögð aðstaða með skjólveggjum. Á baklóð er lítill geymsluskúr.
Allar nánari upplýsingar veitir Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarson Löggiltur fasteignasali í síma 899-1298 eða hakon@prodomo.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.