Fasteignaleitin
Opið hús:16. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 13. sept. 2026

Gyðufell 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
84.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
55.800.000 kr.
Fermetraverð
663.496 kr./m2
Fasteignamat
51.950.000 kr.
Brunabótamat
45.500.000 kr.
Mynd af Rúnar Þór Árnason
Rúnar Þór Árnason
Löggiltur fasteignasali
www.helgafellfasteignasala.isEignalisti
Byggt 1973
3. hæð af 4
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2052501
Landnúmer
112322
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
03
Vatnslagnir
Sagt í lagi
Raflagnir
Sagt í lagi
Frárennslislagnir
Sagt í lagi
Gluggar / Gler
Sagt í lagi
Þak
Sagt í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Yfirbyggðar suður-svalir
Lóð
10,81
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Helgafell fasteignasala kynnir vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð með þremur svefnherbergjum og yfirbyggðum suðursvölum á 3. hæð við Gyðufell 14 í Reykjavík.

Eignin er skráð samtals 84,1 fm samkvæmt fasteignayfirliti HMS. Þar af er íbúðin 73,3 fm, yfirbyggðar svalir 5,0 fm og sérgeymsla á 1. hæð 5,8 fm.

Þakið var endurnýjað 2023/2024.

Skipulagi íbúðarinnar hefur verið breytt á smekklegan hátt. Eldhúsið var fært inn í stofurýmið og myndar nú opið og fjölskylduvænt alrými. Við breytinguna varð fyrra eldhúsrýmið að þriðja svefnherberginu. Baðherbergið hefur einnig verið endurnýjað og er nú með sturtuklefa og upphengdu salerni.

Nánari lýsing eignar:

Anddyri: Gengið er inn í anddyri sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar, harðparket á gólfi.
Eldhús og stofa: Eldhúsið hefur verið fært inn í stofurýmið og saman mynda rýmin bjart og opið alrými með góðri tengingu milli eldhúss, borðstofu og setustofu. Úr stofunni er útgengi á yfirbyggðar svalir sem snúa til suðurs.
Svefnherbergi: Svefnherbergin eru þrjú með lausum skápum. Þriðja svefnherbergið var útbúið í því rými þar sem eldhúsið var áður.
Baðherbergi: Baðherbergið hefur verið uppfært og er með sturtuklefa og upphengdu salerni.  Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Svalir: Yfirbyggðar suðursvalir, skráðar 5,0 fm.
Geymsla: Sérgeymsla á 1. hæð, skráð 5,8 fm.
Sameign: Í sameign hússins eru sameiginlegt þvottahús með þurrkherbergi ásamt hjóla- og vagnageymslu. Opin bílastæði eru á sameiginlegri lóð húsanna.

Mögulegur bílskýlisréttur: Í þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu kemur fram að hverju stigahúsi fylgi réttur til að reisa bílskýli fyrir sex bíla ásamt sex útigeymslum. Jafnframt kemur fram að sex þriggja herbergja íbúðir stigahússins eigi forgangsrétt til byggingar bílskýlisins, en eignin er ein þeirra samkvæmt eignaskiptayfirlýsingunni. Um er að ræða óframkvæmdan byggingarmöguleika en ekki núverandi bílskýli eða sérmerkt bílastæði. Framkvæmdin er háð nánari samþykktum, leyfum og skilyrðum þinglýstra heimilda.

Gyðufell 14 er steinsteypt fjölbýlishús, byggt árið 1973. Eignin er vel staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu og góð útivistarsvæði.

Athygli er vakin á því að í þinglýstri eignaskiptayfirlýsingu er eignin skráð sem þriggja herbergja íbúð með tveimur svefnherbergjum. Íbúðin er hins vegar í dag skipulögð og nýtt sem fjögurra herbergja íbúð með þremur svefnherbergjum, eftir að eldhúsið var fært inn í stofurýmið og fyrra eldhúsrýmið nýtt sem svefnherbergi.

Nánari upplýsingar veitir:
Helgafell fasteignasala í síma 566-0000.
Rúnar Þór Árnason, lgf., runar@helgafellfasteignasala.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/10/200714.550.000 kr.17.400.000 kr.84.1 m2206.896 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grýtubakki 22
Skoða eignina Grýtubakki 22
Grýtubakki 22
109 Reykjavík
71 m2
Fjölbýlishús
212
759 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 19
STOFA2 - 26 mars 2026-2.jpg
Skoða eignina Breiðhöfði 19
Breiðhöfði 19
110 Reykjavík
63.9 m2
Fjölbýlishús
211
1016 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Flókagata 10
Efsta hæð
Opið hús:14. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Flókagata 10
Flókagata 10
105 Reykjavík
78.6 m2
Fjölbýlishús
32
953 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Skeggjagata 16
Skoða eignina Skeggjagata 16
Skeggjagata 16
105 Reykjavík
92.4 m2
Fjölbýlishús
312
832 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin