Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2026

Greniteigur 20

EinbýlishúsSuðurnes/Reykjanesbær-230
172.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
95.000.000 kr.
Fermetraverð
551.364 kr./m2
Fasteignamat
78.050.000 kr.
Brunabótamat
74.700.000 kr.
Mynd af Halla Vilbergsdóttir
Halla Vilbergsdóttir
löggiltur fasteignasali
Byggt 1956
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2087778
Landnúmer
126979
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Nýlegir að framanverðu
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Pallur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Greniteigur 20, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 208-7778 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 172.3 fm.

Um er að ræða  einbýlishús byggt árið 1956 og er steinsteypt, bílskúr er byggður árið 1966. Íbúðarhluti er skráður 120fm og bílskúr 52,3fm. Rými sem var hannað sem borðstofa er í dag nýtt sem svefnherbergi og því eru í dag fjögur svefnherbergi í húsinu.
Hellulögð innkeyrsla með hitalögn að skúr og öðrum inngangi í húsið. Að framanverðu er góður pallur er að framverðu með háum skjólveggjum. 

Húsið var sprunguviðgert og málað 2023.

Nánari upplýsingar veitir:

Halla Vilbergsdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 7727930, tölvupóstur halla@allt.is.


Nánari lýsing eignar:

Neðri hæð: 
Forstofa:  Hvítur fataskápur, gólf er flotað. Fyrir framan forstofu er stór timburverönd með skjólveggjum.
Stofa:  Parket á gólfi. Stór nýlegur plastgluggi.
Eldhús: Eldri hvít eldhúsinnrétting, flotað gólf.
Gestasnyrting: Flísalagt gólf og upp á miðja veggi. Salerni og skápur með handlaug.
Þvottahús: Góð innrétting, útgengt út á bílaplan, flotað gólf.
Svefnherbergi: Rýmið var hugsað sem borðstofa en lokað hefur verið inn í eldhús og útbúið svefnherbergi sem í dag er fjórða svefnherbergið í húsinu. Parket á gólfi.

Efri hæð:

Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni og eru parket á gólfi á þeim öllum. Í stærri herbergjunum eru góðir sérsmíðaðir fataskápar í rýmin. Í þriðja herberginu er einnig fataskápur. Búið er að skipta út gluggum í svefnherbergjunum sem eru á framhlið hússins og setja þar plastglugga.
Baðherbergi: Flísar á gólfi. Stór sturtuklefi og baðkar. Handklæðaofn og salerni. Innrétting með handlaug. Innbyggðir hvítir skápar á vegg. Gólfhiti er á baðherbergi.


Bílskúr: Bílskúrinn er stór og er þar heitt og kalt vatn og rafmagn. Skipt var um klæðningu og járn á þaki árið 2017.

Lóð: Lóðin er 413 fm. Bílaplan er hellulagt. Stór timburverönd að framan með skjólveggjum. Á baklóð er steypt stétt með heitum potti. Einnig möl og timburverönd. Trjágróður er á baklóðinni. 

Húsið er gott fjölskylduhús á góðum stað í Keflavík. Búið er að skipta um glugga á framhlið hússins (suður) sem og útihurðir og er það úr plasti. Nýlegt járn á þaki. Skipt var um klæðningu og járn á þaki árið 2017 á bílskúr. Stór innkeyrsla með hellulögn og góður sólpallur.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/03/202143.000.000 kr.49.000.000 kr.172.3 m2284.387 kr.
09/06/201725.100.000 kr.43.000.000 kr.172.3 m2249.564 kr.
26/07/200718.810.000 kr.26.000.000 kr.172.3 m2150.899 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1966
52.3 m2
Fasteignanúmer
2087778
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.900.000 kr.

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Asparlaut 4
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Asparlaut 4
Asparlaut 4
230 Reykjanesbær
166.2 m2
Raðhús
312
770 þ.kr./m2
127.900.000 kr.
Skoða eignina Þórsvellir 4
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Þórsvellir 4
Þórsvellir 4
230 Reykjanesbær
193.8 m2
Einbýlishús
624
567 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Seljudalur 10
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Seljudalur 10
Seljudalur 10
260 Reykjanesbær
148.8 m2
Raðhús
413
698 þ.kr./m2
103.900.000 kr.
Skoða eignina Klettás 12
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Klettás 12
Klettás 12
260 Reykjanesbær
130.6 m2
Raðhús
413
635 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin