Fasteignaleitin
Opið hús:10. sept. kl 17:00-17:30
Skráð 5. sept. 2024
Deila eign
Deila

Tröllakór 2-4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-203
112.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
79.500.000 kr.
Fermetraverð
706.039 kr./m2
Fasteignamat
74.500.000 kr.
Brunabótamat
59.000.000 kr.
Mynd af Bjarni Blöndal
Bjarni Blöndal
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2007
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Útsýni
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2289980
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
ástand ekki vitað
Raflagnir
ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
ástand ekki vitað
Þak
ástand ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Lóð
3,59
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
parket lélegt
Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (s:662-6163/bjarni@remax.is) kynnir bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð með sérinngangi af svölum á fyrstu hæð í snyrtilegu lyftuhúsi. Suðursvalir með fallegu útsýni að Bláfjöllum. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Samkv. Þjóðskrá Íslands er íbúðin 101,7fm, sérgeymsla 10,9fm, samtals 112,6fm.

Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús, sér geymsla í sameign auk sér bílastæðis í bílakjallara.

Nánari lýsing: 
Forstofa er rúmgóð með góðu skápaplássi, flísar á gólfi, sérinngangur af svölum.
Eldhús með vandaðri viðar innréttingu frá Axis, granít borðplata, innbyggð uppþvottavél og ísskápur með frystihólfi, flísar á gólfi. 
Stofan er mjög rúmgóð og björt með parketi á gólfi, útgengt út á rúmgóðar suður svalir úr stofunni. 
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðu skápaplássi, parket á gólfi.
Svefnherbergi rúmgott með góðum skápum, parket á gólfi. 
Baðherbergi með Axis innréttingu með granít borðplötu, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús er innan íbúðarinnar, flísar á gólfi. 
Sérgeymsla í sameign er 10,4fm.
Sérbílastæði í lokuðu bílastæðahúsi, sameiginleg þvottaaðstaða þar sem hægt er að þvo og ryksuga bílinn.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg í kjallara. 

Gæludýr eru leyfð í húsinu. Gott aðgengi og stutt í alla þjónustu. 
 
Eignin er staðsett á eftirsóttum stað á höfuðborgarsvæðinu, þar sem öll þjónusta er fyrir hendi. Góð eign fyrir fólk með börn, þar sem örstutt er í Kórinn og alla íþróttaaðstöðu, hesthús og Guðmundarlund sem er fallegt útivistarsvæði. Verslun- og þjónusta (Hörðuvallaskóli) og leikskólar (Austurkór, Baugur og Kór) í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar veitir: Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662-6163 eða bjarni@remax.is

Um skoðunarskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. RE/MAX fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlufall af fasteignamati. 1.Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá 69.900kr.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
25/04/202253.450.000 kr.65.000.000 kr.112.6 m2577.264 kr.
16/03/201838.300.000 kr.43.500.000 kr.112.6 m2386.323 kr.
19/12/200827.545.000 kr.25.500.000 kr.112.6 m2226.465 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 2008
Fasteignanúmer
2289980
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B-
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.700.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásakór 14
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Ásakór 14
Ásakór 14
203 Kópavogur
112.8 m2
Fjölbýlishús
312
708 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Álfkonuhvarf 67
Bílastæði
Skoða eignina Álfkonuhvarf 67
Álfkonuhvarf 67
203 Kópavogur
101 m2
Fjölbýlishús
413
791 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Álfkonuhvarf 43
Bílastæði
Opið hús:09. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Álfkonuhvarf 43
Álfkonuhvarf 43
203 Kópavogur
105.9 m2
Fjölbýlishús
312
736 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Hörðukór 3
Skoða eignina Hörðukór 3
Hörðukór 3
203 Kópavogur
116 m2
Fjölbýlishús
413
681 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin