Fasteignaleitin
Skráð 11. sept. 2026

Goðanes 3L 203

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Norðurland/Akureyri-603
418 m2
1 Baðherb.
Verð
147.200.000 kr.
Fermetraverð
352.153 kr./m2
Mynd af Helgi Steinar Halldórsson
Helgi Steinar Halldórsson
Löggiltur fasteigna- og skipasali
Byggt 2026
2. hæð
Svalir
Fasteignanúmer
2544442
Landnúmer
0
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Leigulóð
Kasa fasteignir 461-2010.

Goðanes 3L (203) – Nýtt 418 m² atvinnuhúsnæði á efri hæð með góðri aðkomu og glæsilegu útsýni út fjörðinn. Eign merkt 01-203.

Rúmgott atvinnuhúsnæði sem getur hentað fyrir fjölbreyttan rekstur, verslun eða þjónustu. Heildarstærð eignarinnar er 418 m², þar af er steypt milligólf 145,2 m². Á austurhlið eru stórir útsýnisgluggar og útgengt á yfirbyggðar svalir með útsýni út fjörðinn. Stór innkeyrsluhurð er á húsnæðinu ásamt gönguhurð. Rúmgott malbikað bílaplan er við húsið ásamt sérafnota hluta af plani fyrir framan eignina.


Bygging og frágangur
Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt liggjandi báruálsklæðningu. Innveggir og milligólf eru steypt ásamt stiga á milli hæða. Þakið er úr 160 mm samlokueiningum með steinull og tvöföldu papplagi. Eignin afhendist með vélslípuðum veggjum og pússaðri áferð á gólfi. Gólfhiti er á neðri hæð eignarinnar. Snyrting verður sett upp samkvæmt teikningum.

Hurðir
Innkeyrsluhurðin er frá Límtré Vírneti, um 4 metrar á breidd og um 4,2 metrar á hæð, með rafdrifnum opnara. Gönguhurðin er ál/tré frá Húsasmiðjunni.

Rafmagn og lýsing
Rafmagnstafla/skápur er fullbúinn og lagt er fyrir einum þriggja fasa tengli. Eignin afhendist með vinnulýsingu. Ekki er dregið í aðrar dósir. Nokkrar viðbótardósir eru innsteyptar í veggi án ídráttar og er engin ábyrgð tekin á þeim lagnaleiðum. Útiljós verða yfir hverri innkeyrsluhurð. Ljósleiðari hefur verið dreginn inn í eignina.

Annað
- Sameiginlegt tæknirými er við norðurenda hússins, við innkeyrslu á lóðina.
- Brunakerfi hússins er fullfrágengið, með reykskynjara, sökkulsírenu og handboða í hverju bili.
- Meðfram húsinu verður steypt stétt með hitalögnum.
- Aðkoma er góð og bílaplan stórt og malbikað.
- Lóðin er 6.504,7 m² leigulóð í eigu Akureyrarbæjar.
- Á eigninni hvílir vsk-kvöð sem kaupandi yfirtekur. Auglýst verð er án vsk-kvaðar.
- Eignin er laus til afhendingar í október/nóvember.
- Kaupandi greiðir skipulagsgjald eignarinnar þegar það verður lagt á, sem nemur 0,3% af brunabótamati hennar.

Byggingarverktaki er BB byggingar ehf.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is


------------

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (12)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Goðanes 3K 202
Skoða eignina Goðanes 3K 202
Goðanes 3K 202
603 Akureyri
418 m2
Atvinnuhúsn.
1
352 þ.kr./m2
147.200.000 kr.
Skoða eignina Goðanes 3L - 203
Efsta hæð
Goðanes 3L - 203
603 Akureyri
418 m2
Atvinnuhúsn.
352 þ.kr./m2
147.200.000 kr.
Skoða eignina Goðanes 3K - 202
Efsta hæð
Goðanes 3K - 202
603 Akureyri
418 m2
Atvinnuhúsn.
352 þ.kr./m2
147.200.000 kr.
Skoða eignina Týsnes 14b eign 101
Týsnes 14b eign 101
603 Akureyri
76.7 m2
Atvinnuhúsn.
416 þ.kr./m2
31.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin