Fasteignaleitin
Skráð 19. apríl 2024
Deila eign
Deila

Stóragerði 15

HæðHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
157.5 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
697.778 kr./m2
Fasteignamat
92.300.000 kr.
Brunabótamat
69.590.000 kr.
Mynd af Snorri Björn Sturluson
Snorri Björn Sturluson
Hdl., Löggiltur fasteignasali. Eigandi.
Byggt 1962
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2033828
Húsgerð
Hæð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunlegar - Ekki vitað
Raflagnir
Endurnýjaðar í íbúð 2014
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta 2022
Gluggar / Gler
Endurnýjað í íbúð 2021 - Gamalt í bílskúr
Þak
Þakjárn, rennur og þakkanntur endurnýjað 2016
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Lóð
39
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Drena meðfram húsinu, tvö tilboð komin. Framkvæmd ekki samþykkt.
Mála yfir múrviðgerðir utan á húsinu. Framkvæmd ekki samþykkt. 
Pússa (múra) útitröppur. Framkvæmd ekki samþykkt.
Gallar
Raki í útveggjum fyrir neðan jarðveg í stofu og herbergi í íbúð í kjallara.
Ofn í bílskúr virðist ekki virka.
Leki í bílskúrsþaki, var lagað ofanfrá 2023 með því að bera latex/steypu yfir þakið. Ekki búið að hreinsa loft innanfrá og mála. Einnig rakaskemmdir á útveggvegg (fjær húsi) inn í bílskúr. Hugsanlega er þetta kuldabrú, eða raki sem kemur vegna þess að það er ekki drenað meðfram bílskúr.
Leki í útveggjum á nokkrum stöðum (sjá viðgerðir utan á húsi). Múrari lagaði það 2023. Á eftir að mála yfir múrviðerðir á nokkrum stöðum á húsinu.
Rakaskemmd í lofti við glugga í stofu. Seljendur halda að það sé búið að koma í veg fyrir leka með utanhúsviðgerðum.
Valhöll fasteignasala kynnir fallega, vel skipulagða og töluvert endurnýjaða sérhæð í þríbýlishúsi miðsvæðis í Reykjavík. Um er að ræða heila hæð með sérinngangi, gluggum á öllum hliðum, tvennum svölum og bílskúr.

Eignin er skráð 157,5 fm á stærð og skiptist í 131 fm íbúðarrými og 26,5 fm bílskúr. Að auki fylgir eigninni u.m.b. 10 fm geymsla í kjallara sem virðist ekki vera skráð inn í stærð eignarinnar.

Eignin skiptist í: forstofu, sjónvarpsrými, 3 svefnherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, baðherbergi, geymslu, bílskúr og sameiginlegt þvottahús.

Í dag er eignin með 3 rúmgóðum svefnherbergjum. Auðvelt er að breyta sjónvarpsrýminu í svefnherbergi og þá hefur geymslan í kjallaranum verið nýtt sem herbergi en hún er með góðum glugga, parketi á gólfi og fataskáp. Það er því hægt að vera með 5 svefnherbergi í eigninni.

Þetta er mjög fín eign sem vert er að skoða.

Nánari lýsing:

Forstofa: með flísum á gólfi.
Sjónvarpshol: með parketi á gólfi.
Stofa / borðastofa: samliggjandi með parketi á gólfi og útgengi á suður svalir.
Eldhús: með innréttingu úr Mahogany við, stein á eldhúsborði og parketi á gólfi.
Baðherbergi: endurnýjað fyrir nokkrum árum með innréttingu, baðkari, handklæðaofni og flísum á gólfi og veggjum.
Svefnherbergi I: með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: með fataskáp og parketi á gólfi og útgengi á austur svalir.
Svefnherbergi III: með fataskápum og parketi á gólfi (hjónaherbergi).
Geymsla: Um það bil 10 fm geymsla í kjallara með glugga, fataskáp og parketi á gólfi.
Þvottahús: sameiginlegt í kjallara, allir með sínar vélar, þvottasnúrur.
Bílskúr: 26,5 fm bílskúr (fjær húsi) með rafmagnsopnara og heitu- og köldu vatni. Bílskúrshurð hefur verið endurnýjuð.

Það er ekki verið að greiða í hússjóð.

Endurbætur seinustu ára samkvæmt seljendum:
Rafmagn í íbúð endurnýjað 2014
Þakjárn, rennur og þakkantur endurnýjað 2016
Gluggar og gler endurnýjað 2021
Baðherbergi endurnýjað 2019
Megin frárennslislögn fóðruð 2022
Bílskúrshurð nýlega endurnýjuð 

Nánari upplýsinga veitir:
Snorri Björn Sturluson lögmaður og löggiltur fasteignasali í síma 699 4407 eða snorribs@valholl.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/02/201433.800.000 kr.44.500.000 kr.157.5 m2282.539 kr.
14/03/201127.400.000 kr.31.000.000 kr.157.5 m2196.825 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024
Byggt 1962
26.5 m2
Fasteignanúmer
2033828
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.340.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1B íb303
Grensásvegur 1B íb303
108 Reykjavík
134.8 m2
Fjölbýlishús
413
894 þ.kr./m2
120.450.000 kr.
Skoða eignina Hulduland 7
Opið hús:05. maí kl 15:00-15:30
Skoða eignina Hulduland 7
Hulduland 7
108 Reykjavík
127.8 m2
Fjölbýlishús
514
782 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Sogavegur 81
Bílastæði
Skoða eignina Sogavegur 81
Sogavegur 81
108 Reykjavík
117.2 m2
Fjölbýlishús
312
892 þ.kr./m2
104.500.000 kr.
Skoða eignina Furugerði 35
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Furugerði 35
Furugerði 35
108 Reykjavík
135.5 m2
Raðhús
524
808 þ.kr./m2
109.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - FasteignaleitinPowered by Stellate, the GraphQL Edge Cache