SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FALLEGAR ÍBÚÐIR Í NOTALEGUM SPÆNSKUM BÆ* *STÆÐI Í BÍLAKJALLARA* *SAMEIGINLEG SUNDLAUG OG SÓLBAÐSAÐSTAÐA Á ÞAKI*Fallegar og og vel hannaðar íbúðir í Benijofar, ekta spænskum bæ, um 45 mín. akstur suður af Alicante. Stutt er í alla nauðsynlega þjónustu, verslanir og veitingastaði. Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d. La Marquesa og La Finca sem er glæsilegur PGA golfvöllur. Einnig eru fleiri góðir golfvellir skammt undan, s.s. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas. Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 20 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Allar upplýsingar veita:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali.GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is. Sími 0034 615 112 869Nánari lýsing:2ja herb. íbúð (78,60 fm og 19 fm verönd): Gengið er inn í forstofu og þar inn af á vinstri hönd er baðherbergi með sturtu. Við endann á forstofu er gengið inn í opið rými með stofu, borðstofu og eldhúsi og þar á vinstri hönd er einnig rúmgott svefnherbergi. Úr stofu er gengið út á góða verönd og þar er jafnframt þvottaðstaða. Sameiginleg sundlaug er á þaki hússins auk sólbaðs- og grillaðstöðu.
Verð miðað við gengi 1 Evra=145ISK
2ja herb. íbúð, þ.e. 1 svefnh. + 1 baðh. frá 249.900 evrur (ISK 36.200.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn.
3ja herb. íbúð, þ.e. 2 svefnh og 2 baðh. frá 284.900 evrur (ISK 41.300.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn.
4ja herb. íbúð, þ.e. 3 svefnh og 2 baðh. frá 396.900 evrur (ISK 57.550.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn.Stæði í bílakjallara og heimilistæki fylgja öllum íbúðum.
Benijofar er skemmtilegur ekta spænskur bær á Costa Blanca svæðinu, í góðu umhverfi með sjarmerandi hefðbundnu spænsku bæjarlífi, Fiestum og götumarkaði, verslunum og veitingastöðum. Ca. 20-30 mín. akstur í suður frá Alicante flugvellinum. Ca. 10 mín. akstur á tvo góða golfvelli, La Finca og La Marquesa, og ótal fleiri góðir golfvellir eru í innan við 20 mín akstursleið frá Benijofar. Aðeins 8 km. frá fallegu ströndunum á Costa Blanca og ekki nema 2-3 mín akstur eða góður göngutúr til Ciudad Quesada og Dona Pepa, sem eru vinsælir og líflegir bæir sem iða af mannlífi allt árið. Þetta er því staðsetningin fyrir þá sem vilja upplifa ekta spænskt umhverfi, en njóta þæginda og þjónustu nútímans.
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:
www.spanareignir.isKostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.
Eiginleikar: bílastæði, air con, sameiginlegur sundlaugargarður, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Benijofar,