Fasteignaleitin
Skráð 13. okt. 2026

Klettagljúfur 23 með auka íbúð

Tví/Þrí/FjórbýliSuðurland/Ölfus-816
402.6 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
224.700.000 kr.
Fermetraverð
558.122 kr./m2
Fasteignamat
128.350.000 kr.
Brunabótamat
223.500.000 kr.
Mynd af Elínborg María Ólafsdóttir
Elínborg María Ólafsdóttir
Löggiltur fasteignasali
861 6866valborgfs.isEignalisti
Byggt 2007
2. hæð · efsta
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2301462
Landnúmer
193051
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Já
Inngangur
Sérinngangur
VALBORG fasteignasala kynnir í sölu, fallega eign með útleiguíbúð að Klettagljúfri 23 í Ölfusi.
Heildarstærð eignarinnar er 402,6m².
Um er að ræða stóra íbúð með bílskúr á aðalhæð, 301,2m² að stærð, þar af er bílskúrinn 75,4m² og útleiguíbúð á jarðhæð er 101,4m².
Eignin stendur á fallegum stað með miklu útsýni í Ölfusi en aðeins nokkrum mínútum frá Hveragerði.
Samkvæmt deiliskipulagi er heimilt að reisa 100m² hesthús á lóðinni og er búið að jarðvegskipta fyrir því norðan megin við húseignina.
Rut Káradóttir innanhúsarkitekt hannaði á smekklegan hátt alla eignina að innan, sem og innréttingar. Gólfhiti er í eigninni og gott loftræstikerfi.


Eignin skiptist á eftirfarandi hátt:
Aðalhæðin er með forstofu, alrými með eldhúsi, stofu, borðstofu og sjónvarpsaðstöðu, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, þvottahús, tvö baðherbergi og bílskúr. Stórar og breiðar svalir umlykja húsið á suður, vestur og norðurhliðinni.
Á jarðhæðinni er íbúð með sérinngangi. Hún skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Íbúðinni fylgir einnig geymsla og þá er einnig verönd við inngang íbúðarinnar. 

Nánari lýsing á eigninni:
Komið er inn í rúmgóða forstofu, þar er fimmfaldur fataskápur.
Alrými er stórt, með mikilli lofthæð og innfeldri lýsingu. Þar er opið og bjart eldhús með hvítri innréttingu og eyju með eldhúsvaski, gaseldavél og góðu borðplássi með setusvæði. Tveir bakarofnar eru hlið við hlið í vinnuhæð og mjög gott skápa og skúffupláss er í innréttingu. Þá er einnig setusvæði við eyjuna, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur.
Stofa og borðstofa eru saman í opnu rými en járnklæddur arinveggur aðskilur eldhús og stofu að hluta. Sérstakur hljóðdúkur er undir loftaklæðningu í stofum og eldhúsi sem að gefur þéttara hljóð í rýmum og ekkert bergmál. Frá stofu er útgengt út á miklar og breiðar svalir sem umlykja húsið á þrjá vegu. Glerhandrið er á svölunum.
Herbergin eru þrjú talsins og öll eru þau mjög rúmgóð. Hjónaherbergið er með gólfsíðum gluggum og inn af hjónaherbergi er fataherbergi. Þaðan er útgengt út á svalir.
Tvö rúmgóð barnaherbergi eru án fataskápa.
Baðherbergin eru tvö. Á öðru þeirra er vönduð innrétting með handlaug, flísalagður setbekkur, upphengt salerni, "walk-in" sturta og speglaveggur með lýsingu.
Þvottaherbergi og baðherbergi nr tvö er svo saman í einu mjög stóru rými. Þar er stór innrétting fyrir þvottavél og þurkara og skápa og skúffupláss er mikið. Þar er svo einnig innrétting með handlaug og skúffuplássi, flísalagður setbeggur við hlið útidyra er ganga út á pottasvæði. Þar er einnig "walk-in" sturta, vegghengt salerni og og speglaveggur með lýsingu.
Frá þvottahúsi er innangengt í stóran bílskúr en bílskúrinn er 75,4m². Tvær rafdrifnar innkeyrsludyr eru á bílskúrnum sem er með mikilli lofthæð, þriggja fasa rafmagn, innrétting með handlaug og búið er að leggja fyrir rafhleðslustöð í bílskúrnum.

Á jarðhæð er tveggja herbergja íbúð með sérinngangi.
Komið er inn í forstofu og þar eru góðir fataskápar. Á hægri hönd er gengið inn í þvottahús. Þar er innrétting með skolvaski og gert ráð fyrir þvottavél og þurkara.
Alrými með stofu og eldhúsi en búið er að stúka af eitt svefnherbergi og þar eru góðir fataskápar. Eldhús með hvítri innréttingu og miklu skápa og skúffuplássi.
Bakarofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og pláss fyrir einfaldan ísskáp. Baðherbergi með fallegri innréttingu með handlaug og skúffuplássi.
Flísalagður setbekkur er við "walk-in" sturtuna, upphengt wc og handklæðaofn. Í dag er eitt svefnherbergi með fataskápum en auðvelt er að stúka af hluta af alrými og gera annað herbergi. Frá stofu er úrgengt með rennihurð út á verönd. Geymsla og inntaksrými er á jarðhæð og er gengið í það utanfrá.

Hér erum við að tala um vandaða og fallega eign, á stórri eignarlóð í Ölfusi en aðeins nokkrar mínútur frá Hveragerði. Eignin var hönnuð að innan af Rut Káradóttur, innanhúshönnuði sem og innréttingar. Eignin er stór, með hátt til lofts og vítt til veggja, með mjög stórum bílskúr og auka útleiguíbúð á neðri hæð sem er með sérinngangi. Svalir umhverfis húsið voru hannaðar breiðar og stórar svo hægt væri með góðu móti að hafa borð og stóla og njóta útsýnis til fulls en mikið og gott útsýni er yfir víðáttu Ölfus. Skólabíll gengur í Hverfinu en skólahald er sótt í Hveragerði. 


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með  sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.



 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/04/201822.500.000 kr.32.000.000 kr.304.2 m2105.193 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignanúmer
2301462
Númer eignar
03
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 2007
101.4 m2
Fasteignanúmer
2301462
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
56.350.000 kr.
Fasteignanúmer
2301462
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Klængsbúð 18
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Klængsbúð 18
Klængsbúð 18
815 Þorlákshöfn
121,5 m2
Raðhús
313
639 þ.kr./m2
77.600.000 kr.
Skoða eignina Langholtsvegur 35
img_2781.jpg
Langholtsvegur 35
104 Reykjavík
73,3 m2
Fjölbýlishús
413
880 þ.kr./m2
64.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (501)
diddi_vefur-(74).jpg
Áshamar 56 (501)
221 Hafnarfjörður
90,8 m2
Fjölbýlishús
413
854 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 56 (101)
Diddi_vefur (32).jpg
Áshamar 56 (101)
221 Hafnarfjörður
90 m2
Fjölbýlishús
413
850 þ.kr./m2
76.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin