Fasteignaleitin
Opið hús:05. okt. kl 16:45-17:15
Skráð 2. okt. 2026

Urriðaholtsstræti 36

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
126.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
870.150 kr./m2
Brunabótamat
94.250.000 kr.
Byggt 2021
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25094651
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir kynna í einkasölu: Gullfalleg endaíbúð á efstu hæð við Urriðaholtsstræti 36 í fallegu lyftuhúsi í Urriðaholtinu í Garðabæ.  Íbúðin er sérlega björt og vönduð með fallegu útsýni og stórum svölum í suður og bílastæði í bílakjallara.  Íbúðin er mjög vel innréttuð með hita í gólfi, innfelldri lýsingu og aukinni lofthæð.  

Komið er inn á rúmgóða forstofu/hol með parketi og fataskápum.  Stórt parketlagt alrými sem er stofa, borðstofa og eldhús, gluggar á þrjá vegu gefa fallega birtu og mikið útsýni. Rennihurð út á stórar suðursvalir.  Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu og Quartz borðplötum, vönduð AEG tæki. Falleg eyja skilur eldhúsið frá borðstofunni. Tvö mjög rúmgóð barnaherbergi með parketi og fataskápum sem ná upp í loft. Stórt hjónaherbergi með parketi á gólfi og gluggum á tvo vegu, stórir fataskápar á heilum vegg.  Mjög rúmgott baðherbergi sem er að hluta til þvottahús. Flísar eru á gólfi og veggjum að hluta, stór sturta sem gengið er inní, falleg hvít innrétting. Þvottahúsið er með góðri hvítri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vaksi. 

Hiti er í gólfum og aukin lofthæð er í íbúðinni ásamt innfelldri lýsingu. Stórar rennihurðir opnast út á svalir. Bílastæði fylgir með í lokaðari bílageymslu, tengi fyrir hleðslustöð. Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Húsið er á fjórum hæðum og er íbúðin því á efstu hæð. Húsið er klætt að utan með álklæðningu og ál/tré gluggum og er þannig nokuð viðhaldslétt. Húsið er teiknað af Davíð Kristjáni Pitt. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@aldirfasteignir.is 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 1 (302)
Efsta hæð
Opið hús:04. okt. kl 14:15-14:45
302 forsíða.jpg
Skoða eignina Vorbraut 1 (302)
Vorbraut 1 (302)
210 Garðabær
136.3 m2
Fjölbýlishús
322
1100 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Skólatröð 6
Bílastæði
Skoða eignina Skólatröð 6
Skólatröð 6
200 Kópavogur
110.2 m2
Fjölbýlishús
413
997 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1 (101)
Opið hús:04. okt. kl 14:15-14:45
v1 101.png
Skoða eignina Vorbraut 1 (101)
Vorbraut 1 (101)
210 Garðabær
114.8 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 1 (201)
Opið hús:04. okt. kl 14:15-14:45
v1 201.png
Skoða eignina Vorbraut 1 (201)
Vorbraut 1 (201)
210 Garðabær
115 m2
Fjölbýlishús
312
1017 þ.kr./m2
116.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin