Aldir Fasteignir og Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is kynna til sölu:Glæsilega fullbúna 4ra herbergja íbúð í fimm hæða staðsteyptu álklæddu lyftuhúsi við Suðurhellu 16 í Hafnarfirði. Íbúðin afhendist fullbúin við undirritun kaupsamnings með innréttingum og skápum frá Axis, gólfefni frá Birgisson og full frágenginni sameiginlegri lóð með leiktækjum á bak við hús.
HLUTDEILDARLÁN ER Í BOÐI FYRIR ÞESSA ÍBÚÐ - KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ *** HMS HLUTDEILDARLÁN ***Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 898-2017 netfang:
anna@aldirfasteignir.isSjón er sögu ríkari *** Bókaðu einkaskoðun hér *** Nánari lýsing.
Íbúð 206 er 122,4 fm fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð og skiptist í anddyri, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu með útgengi á svalir og útsýni yfir hraunið. Næg bílastæði. Anddyri: Rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi.
Borð- og setustofa: Í opnu björtu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á sér svalir íbúðar sem snúa til suðurs þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir hraunið og til fjalla.
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Innréttingar frá Axis, blöndunartæki frá Tengi, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili og gluggi með opnanlegu fagi . Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson.
Sameign: Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.
Suðurhella 16 er hluti af klasabyggingu þar sem skemmtilegur garður mun tengja húsin saman. Í stigaganginum eru 27 íbúðir. Húsið stendur á lóð sem markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem fyrir framan hús er fjöldi bílastæða og búið að gera ráð fyrir hleðslustöðvum og á bak við hús er sameiginlegur garður með leiktækjum og sígrænum gróðri.
Fallegar, rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir í nýju klæddu lyftuhúsi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, World Class, sundlaug og fallega náttúru.
ÞBF ehf. er byggingaraðili hússins og er reynslumikið og traust byggingarfyrirtæki sem hefur unnið við húsbyggingar í áratugi.
Kaupandi borgar skipulagsgjald þegar þess verður krafist sem er 0,3 % af væntu brunabótamati eignarinnar.
Falleg, rúmgóð og vel skipulögð íbúð í nýju klæddu lyftuhúsi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, World Class, sundlaug og fallega náttúru. Bókaðu skoðun hjá fasteignasölum eða fáðu frekari upplýsingar:Anna Sigurðardóttir lögg. fasteignasali, s: 898-2017 eða anna@aldirfasteignir.is
Brynjólfur Snorrason lögg. fasteignasali, s: 896-2953 eða brynjolfur@aldirfasteignir.is
Gunnlaugur A. Björnsson lögg. fasteignasali s: 617-5161 gab@aldirfasteignir.is
Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur. Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.