BYR fasteignasala kynnir í einkasölu KELDUSKÓGAR 1-3 ÍBÚÐ 601, 700 Egilsstaðir. Fjögurra herbergja íbúð á sjöttu hæð í lyftuhúsi á Egilsstöðum.
Stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði.
Húsið er forsteypt byggt árið 2004. Eignin skiptist í íbúð 100,8 m² og geymslu 7,9 m². samtals 108.7 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, gangur, eldhús, stofa, gangur, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í sameign er sérgeymsla ásamt hjóla- og vagnageymslu og sorpgeymslu.
*** Íbúðin er laus frá 1. ágúst 2026 ***
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |
Nánari lýsing:
Anddyri, fataskápur og fatahengi, innangengt er í eldhús annarsvegar og í þvottahús hinsvegar frá anddyri.
Eldhús, Brúnás innrétting, helluborð og ofn, vifta, gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Borðkrókur er innst í eldhúsi, innangengt er í stofu frá borðkrók.
Stofa gluggar í tvær áttir, útgengt er úr stofu út á 8,6 m² svalir.
Gangur liggur við stofu að svefnherbergjum og baðherbergi. Vinnuaðstaða er innst á gangi.
Hjónaherbergi er með fataskápum.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, rúmgóð vask innrétting.
Þvottahús er innan íbúðar, vinnuborð, pláss fyrir tvær vélar.
Gólfefni: Parket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar eru á, baðherbergi og þvottahúsi.
Sérgeymsla er í kjallara, málað gólf.
Í sameign er stigahús, lyfta, inntaksrými, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla.
Kelduskógar 1-3 er forsteypt sjö hæða fjölbýlishús auk kjallara, valmaþak. Þrjár íbúðir eru á hverri hæð eða samtals 21 íbúð. Undir húsinu er niðurgrafinn kjallari með sérgeymslum íbúða og sameiginlegum geymslum.
Á ytra byrði útveggjaeininga er dökk-grár mulningur, timbur/ál gluggar. Steypt stétt er við anddyri hússins, hiti er í stétt. Lyfta er í húsinu.
Lóð er sameiginleg fullfrágengin. Bílastæði á lóðinni eru sameiginleg, við inngang eru tvö bilastæði merkt fyrir hreyfihamlaða.
Lóðin er sameiginleg 7418,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings. Lóðarleigusamningur til 50 ára frá 21. maí 2003.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |