Valborg fasteignasala kynnir í einkasölu Dalsel 31, 109 Rvk, ásamt stæði í bílageymslu.
Rúmgóð 4ra herb. íbúð á 1.hæð í litlu snyrtilegu, mikið endurnýjuð, fjölbýli. Góðar suð-vestur svalir.
Eignin skiptist í forstofu, alrými sem í er eldhús, stofa sem og borðstofa, útgengt þaðan út á suð-vestur svalir, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi. Baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Geymsla sem og hjóla/vagna geymsla á jarðhæð. Stæði í bílageymslu fylgir.Eignin er skráð 97,7 m² samkvæmt skráningur Þjóðskrár Íslands, þ.a. er geymsla skráð 6,7 m².
** EIGNIN GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMING **Lýsing eignar:
Forstofa: Parket á gólfi, góður fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, viðar innréttingu og ný borðplata. Góður borðkrókur. Nýleg tæki.
Stofa/borðstofa: Góð stofa sem og borðstofa með parketi á gólfi. Útgangur út á stórar suð-vestur svalir.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp. Parket á gólfi
Svefnherbergi: Tvö barnaherbergi með parket á gólfi, annað með fataskáp.
Baðherbergi: Baðherbergi með eldri innréttingu. Baðkar með sturtu aðstöðu. Gólf og veggir flísalagt. Tengi fyrir þvottavél inn á baðherbergi.
Geymsla sem til heyrir íbúðinni, sem og sameiginleg
hjóla- og
vagnageymsla, á jarðhæð stigahússins.
Bilageymsla: Gott og rúmgott bílastæðí í bílageymslu, þar er einni
þvottaaðstaða fyrir bíla.
Nýlegar endurbætur:
2023 - Nýtt parket á allri íbúðinni, fyrir utan baðherbergi.
2023 - Nýjar innihurðar.
2023 - Ný tæki í eldhúsi og ný borðplata.
Nýlega skipt um glugga á íbúðum efstu hæðar, nýjar hurðir í sameign og nýir gluggar í sameign.Nánari upplýsingar veitir Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur
gunnar@valborgfs.is.
Aðrar eignir sem við seljum má sjá
hér.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.