Fasteignaleitin
Skráð 3. okt. 2025

Öxl 2

EinbýlishúsNorðurland/Blönduós-541
281.4 m2
9 Herb.
8 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
42.000.000 kr.
Brunabótamat
126.840.000 kr.
Garður
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2136207
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
nei
Upphitun
Rafmagns
Inngangur
Margir inngangar
Domus Fasteignasala kynnir í einkasölu Sveitasetrið Öxl 2 í Húnabyggð

Öxl 2 er glæsilegt og fjölbreytt sveitasetur á einstökum stað í mynni Vatnsdals í Austur-Húnavatnssýslu. Eignin er alls 281,4 fm að stærð og stendur á 2,6 hektara eignarlóð með stórbrotnu útsýni. Húsið, sem er byggt árið 1970 með viðbyggingu frá 1994, er á þremur hæðum og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika – jafnt sem rúmgott heimili eða sem rekstrartækifæri í ferðaþjónustu.

Skipulag hússins

Efri hæð:
-Fjögur svefnherbergi.
-Tvær samliggjandi stofur með einstöku útsýni.
-Stórt eldhús með borðkrók og búri.
-Nýuppgert baðherbergi með sturtu.
-Anddyri.

Neðri hæð:
-Fjögur stór herbergi.
-Mjög rúmgott þvottahús.
-Kyndiklefi.
-Baðherbergi með sturtu.
-Stór geymsla.
-Verkstæði sem auðvelt er að breyta í tvö til þrjú herbergi.

Viðbygging:
-Stórt rými með sérinngangi og stór tvö rými til að hengja af sér útifötin til dæmis og góð geymsla fyrir til dæmis útivistardót, veiðigræjur, hnakka og fleira. Stigi er niður neðri hæð.

Húsið hefur þrjá innganga. Í suðvesturhorni er svokallaður forseta inngangur, þar sem Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi forseti Íslands, gekk inn þegar hún heimsótti Húnavatnssýslu.

Aðstaða og búnaður

-Nýlega borað fyrir köldu vatni.
-Þriggja fasa rafmagn.
-Ljósleiðaratenging.
-Samþykkt teikning liggur fyrir af tvöföldum bílskúr við húsið.
-Búið er að drena í kringum húsið.
-Nýleg hellulögn fyrir framan húsið. 

Útsýni

Útsýnið frá Öxl 2 er í algjörum sérflokki:
-Til suðurs blasir við Vatnsdalurinn, Vatnsdalshólar og Víðidalsfjall í baksýn.
-Til vesturs má sjá yfir Eylendið, þar sem Vatnsdalsá og Vatnsfarið renna, með Borgarvirki, Hópið og Vatnsnesið handan við.
-Í norðvestri eru Þingeyrar og við gott skyggni sést allt til Vestfjarða.
-Í austurátt rís hið tignarlega Axlaröxl, sem jörðin dregur nafn sitt af.

Möguleikar
Eignin býður upp á fjölbreytt tækifæri:
-Sem stórt og rúmgott heimili með miklu notagildi.
-Sem sveitasetur eða gistiheimili fyrir ferðamenn.
-Með möguleika á frekari uppbyggingu, s.s. bílskúr eða aukaherbergi.

Öxl 2 er einstakt tækifæri til að eignast glæsilegt sveitasetur á fallegum stað – með mikla möguleika fyrir ferðaþjónustu.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 stefano@pacta.is



Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1994
15.6 m2
Fasteignanúmer
2136207
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
8.940.000 kr.

Myndir (51)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lyngmói 16
Bílskúr
Skoða eignina Lyngmói 16
Lyngmói 16
260 Reykjanesbær
255.2 m2
Einbýlishús
815
662 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Akurgerði 16
Bílskúr
Skoða eignina Akurgerði 16
Akurgerði 16
190 Vogar
230.2 m2
Einbýlishús
614
404 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Skoða eignina Viðjuskógar 2
Bílskúr
Opið hús:17. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Viðjuskógar 2
Viðjuskógar 2
300 Akranes
171.4 m2
Einbýlishús
514
670 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Eyktarás 15
Skoða eignina Eyktarás 15
Eyktarás 15
110 Reykjavík
269.6 m2
Einbýlishús
716
649 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin