Fasteignaleitin
Opið hús:01. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 25. sept. 2026

Tangabryggja 15

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
157.3 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
121.900.000 kr.
Fermetraverð
774.952 kr./m2
Fasteignamat
112.500.000 kr.
Brunabótamat
106.200.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2019
6. hæð
Garður
Svalir
Pallur
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2369435
Landnúmer
179538
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
06
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Tvennar svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Samkvæmt yfirlýsingu seljenda er húsfélagið í viðræðum við byggingaraðila um úrbætur á nokkrum atriðum, einkum varðandi sorpgeymslu og sameign. Seljendur upplýsa að lokaúttekt hafi verið felld úr gildi og unnið sé að úrbótum.
Elka Guðmundsdóttir lgf., s. 863-8813, og Fasteignasalan TORG kynna virkilega fallega, bjarta og rúmgóða 5 herbergja íbúð á tveimur hæðum við Tangabryggju 15 í Reykjavík.  Íbúðin er í fremstu línu við sjóinn með dásamlegu útsýni.
Eignin er skráð 157,3 m² og skiptist í íbúð á tveimur hæðum og 6,4 m² sérgeymslu. Fjögur svefnherbergi eru í íbúðinni, þrjú á neðri hæð og hjónaherbergi á efri hæð. Stæði í bílageymslu fylgir eigninni.  Innréttingar eru frá GKS/Nobilia. Húsið var byggt árið 2019
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.

Nánari lýsing
Komið er inn í íbúðina um forstofu.
Eldhús, borðstofa og stofa mynda rúmgott alrými þar sem mikil lofthæð og stórir gluggar njóta sín vel.
Eldhúsið er með eyju og góðu vinnuplássi.  Það er búið helluborði, blástursofni með kjöthitamæli, háfi, innbyggðum ísskápi og uppþvottavél.
Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi og baðherbergi.  Einnig er geymsla á ganginum. Útgengt er á tvennar svalir.
Stigi liggur upp á efri hæð þar sem er hjónaherbergi, baðherbergi og opinn pallur. Pallurinn getur nýst sem setustofa eða vinnuaðstaða og tengir hæðirnar skemmtilega saman.
Geymsla og bílastæði: Sérgeymsla er skráð 6,4 m² og mjög gott stæði í bílageymslu fylgir eigninni við hlið inngangs. Íbúðum fylgir einnig hlutdeild í sameiginlegum bílastæðum við húsið.
Innréttingar eru frá GKS þar sem við á, framleiddum af Nobilia í Þýskalandi.  Húsið er klætt að utan með ál- og tréklæðningu. 

Einstaklega rúmgóð og falleg íbúð með fjórum svefnherbergjum, björtu alrými, mikilli lofthæð og dásamlegu útsýni.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur elka@fstorg.is.


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/04/201968.500.000 kr.78.000.000 kr.157.3 m2495.867 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
Fasteignanúmer
2369435
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B5
Númer eignar
5
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.800.000 kr.

Myndir (62)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sóleyjarimi 13
Hleðslustöð
Opið hús:27. sept. kl 12:00-12:30
Skoða eignina Sóleyjarimi 13
Sóleyjarimi 13
112 Reykjavík
143.1 m2
Fjölbýlishús
322
698 þ.kr./m2
99.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 9C (307)
IMG_2699.jpg
Jöfursbás 9C (307)
112 Reykjavík
83.7 m2
Fjölbýlishús
312
871 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 9C (306)
IMG_2698.jpg
Jöfursbás 9C (306)
112 Reykjavík
83.6 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 9C (308)
IMG_2699.jpg
Jöfursbás 9C (308)
112 Reykjavík
100.2 m2
Fjölbýlishús
514
833 þ.kr./m2
83.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin