Fasteignaleitin
Skráð 3. sept. 2026

Lækjasmári 19

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
66.1 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.000.000 kr.
Fermetraverð
998.487 kr./m2
Brunabótamat
43.800.000 kr.
Byggt 2000
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22306702
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK kynnir:  Mikið endurnýjuð og falleg 66,1 fm, 2ja herbergja íbúð á 2. og efstu hæð í litlu fjölbýli í Smáranum í Kópavogi.  Frábær staðsetning þar sem göngufæri er í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir. Óinnréttað þakrými fylgir, sem hægt er að hafa innangengt úr íbúð.

Nýlegar endurbætur:  Eignin var endurnýjuð að innan fyrir nokkrum árum.  Árið 2023 var gler endurnýjað í íbúðinni.  Nýmálað þak.  Búið er að endurnýja rafmagn í íbúðinni.  


Forstofa er með parketi á gólfi og nýlegum fataskápum.
Svefnherbergið er smekklegt með parketi á gólfi, áfastri veggklæðningu með innfelldri lýsingu og fataskáp.
Baðherbergið er flísalagt með fallegri innréttingu, handklæðaofni, baðkari með sturtuaðstöðu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofan og borðstofan eru í björtu og opnu rými með parketi á gólfi.  Útgengt út á suðvestur svalir.
Eldhúsið er með smekklegri dökkri innréttingu með innbyggðri uppþvottavél, vinkæli og ofni í góðri vinnuhæð. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp.

Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla íbúðar, 7,3 fm ásamt sameiginlegum rýmum.

Eigninni fylgir þakrými merkt 0302 sem er óinnréttað og er skv skráningartöflu 55,2 fm að botnfleti.  Nýtanlegir fermetrar því færri.  Möguleiki er að opna úr íbúð upp í þetta rými og innrétta.

Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
--------------------------------------------------------------

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 10 -404
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:01. okt. kl 17:30-18:00
Hafnarbraut 10 -404
200 Kópavogur
62.2 m2
Fjölbýlishús
211
1190 þ.kr./m2
73.990.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 12:30-13:00
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
78.5 m2
Fjölbýlishús
212
929 þ.kr./m2
72.900.000 kr.
Skoða eignina Háalind 19
Bílskúr
Heitur pottur
Skoða eignina Háalind 19
Háalind 19
201 Kópavogur
187.3 m2
Parhús
615
960 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Skoða eignina Gæfutjörn 6
Bílastæði
Skoða eignina Gæfutjörn 6
Gæfutjörn 6
113 Reykjavík
56.2 m2
Fjölbýlishús
211
1100 þ.kr./m2
61.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin