Gimli fasteignasala og Elín Rósa Guðlaugsdóttir kynna: Kelduland 21, 108 Reykjavík
Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð (gengið upp hálfa hæð). Eignin Kelduland 21 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign
203-7595, birt stærð 85.9 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Íbúð skráð 81.6 fm og geymsla 4.3 fm.Bókið skoðun hjá Elín Rósa Guðlaugsdóttir í síma 7737126, eða elinrosa@gimli.is
NÁNARI LÝSING: Hol: rúmgott, opið að hluta til í stofu.
Herbergi #1: ágætt barnaherbergi (möguleiki á að stækka og sameina öðru herbergi)
Herbergi #2: ágætt barnaherbergi (möguleiki á að stækka og sameina öðru herbergi)
Hjónaherbergi: rúmgott og gott skápapláss.
Baðherbergi: baðkar með sturtu. Innrétting með vaski. Hydracork á gólfum og fibo plötur á veggjum.
Eldhús: U-laga viðarinnrétting. Borðkrókur og gluggi. Borðuppþvottavél fylgir. Náttúruflísar á gólfi og gólfhiti.
Stofa/borðstofa: rúmgóð og björt. Útgengi á stórar suður svalir.
Gólfefni í íbúð er parket, nema annað komi fram.Geymsla: í sameign.
Þvottahús: nýlega tekið í gegn. Í sameign.
Niðurlag: Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á góðum stað í Fossvoginum. Nánari upplýsingar veitir: Elín Rósa Guðlaugsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 7737126, tölvupóstur elinrosa@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.